Spennt að syngja fyrir “alvöru fólk”

Útgáfutónleikar disksins Heima fara fram í Salnum Kópavogi á laugardaginn klukkan 16:00. Þar flytja Eyjakonurnar Silja Elsabet Brynjarsdóttir og Helga Bryndís Magnúsdóttir píanóleikari sönglög ástsælasta tónskálds Eyjamanna Oddgeirs Kristjánssonar.

Silja Elsabet sagði í samtali við Eyjafréttir vera mjög spennt fyrir tónleikunum. „Ég kom síðast fram fyrir áhorfendur á goslokahátíðinni í sumar, ég er búin að koma fram á nokkrum sýningum úti í London í haust en þar voru engir áhorfendur. Það var mjög skrítið og manni leið ekki eins og þetta væri sýningin, frekar bara æfing. Við listamenn fáum orkuna okkar frá áhorfendunum í salnum, við nærumst á þeirra hrifningu og ánægju. Þess vegna er ég mjög spennt að fá að syngja aftur fyrir “alvöru fólk”.

Hvað getur þú sagt mér um þennan disk? „Þessi diskur inniheldur 24 lög eftir Oddgeir Kristjánsson í hans útsetningum. Oddgeir var búin að setja saman nótnahefti með 26 lögum rétt áður en hann lést, það hefti var gefið út 1968, tveimur árum eftir andlát hans. Við Helga Bryndís erum miklir Oddgeirs aðdáendur og ákváðum við að þessi lög þurfa líka að fá að njóta sín eins og Oddgeir útsetti þau. Við Helga erum búnar að stúdera lögin mikið og setjum við allt okkar hjarta í þessar upptökur. Það finnst mér mestu máli skipta þegar verið er að flytja þessar dásamlegu perlur. Ef það er engin tilfinning hjá flytjendunum ná þau ekki að njóta sín.“

Silja segir söluna hafa gengið vel. „Við vonumst til að fylla salinn! Við megum bara selja 100 miða svo hægt sé að fylgja öllum sóttvörnum. Það eru nokkrir miðar eftir og ég vona innilega að við seljum alla miðana. Ég hlakka mikið til að sjá öll vinalegu andlitin sem hafa fylgt mér í gegnum árin og komið á alla tónleikana mína, mér þykir mjög vænt um ykkar stuðning. Takk fyrir mig!“

Nýjustu fréttir

Laskað lið ÍBV tapaði gegn Val
Athugasemd
Dísa leiðir Eyjalistann
Kvenfélagið Líkn færði HSU veglega gjöf
Loðnan tengir saman Vestmannaeyjar og Japan
Listir og menning í Framhaldsskóla Vestmannaeyja
Lestur ársreiknings bæjarins gefur allt aðra mynd
Ísólfur Gylfi – 42 ár frá Helliseyjarslysinu

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.