Spilar aldrei aftur fyrir ÍBV
Eyja 3L2A8985
Kári Kristján Kristjánsson

Kári Kristján Kristjánsson spilar ekki með ÍBV í Olís-deildinni í vetur og mun aldrei leika aftur í treyju ÍBV. Þetta staðfesti hann í löngu og ítarlegu hlaðvarpsviðtali við Handkastið í gærkvöldi.

Í viðtalinu fer hann ítarlega yfir tímalínu samningaviðræðna hans við ÍBV sem hófust í maí og lauk í síðustu viku. Þar segir Kári frá því að  framkvæmdastjóri handknattleiksdeildar ÍBV, Þorlákur Sigurjónsson hafi haft samband við hann símleiðis og tilkynnt honum það að hann fengi ekki samning við félagið eins og talað hafi verið um í munnlegu samkomulagi milli þeirra fyrr í sumar. Nú er ferill hans í óvissu og telur Kári afar litlar líkur á því að hann spili handbolta aftur.

Kári Kristján verður 41 árs í október en hann hefur spilað með ÍBV sl. tíu ár. Hann hefur unnið tvo Íslandsmeistaratitla og tvo bikarmeistaratitla með ÍBV.

Hlusta má á allt viðtalið hér.

Nýjustu fréttir

Vestmannaeyjar Open 2026 í pílukasti fór fram um helgina
ÍBV tapaði á heimavelli gegn ÍA
Hlynur Andrésson hljóp maraþon á EM í morgun
Aníta Óðinsdóttir – Tekur þátt í Reykjavíkurmaraþoninu í fyrsta sinn
Nýbyggingin við Tangagötu tekur á sig mynd
Mikilvæg stig í húfi hjá ÍBV á Hásteinsvelli
Íslandsmót golfklúbba í 2. deild karla hefst í Eyjum á morgun
Minna á lokanir við Viðlagafjöru
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.