Herjólfur hefur sent frá sér tilkynningu um stöðu helstu mála er varða siglingar Herjólfs IV, dýpkun í Landeyjahöfn, viðgerð á mótor skipsins og stöðu varaskips. Tilkynningin var birt í dag og má sjá hér fyrir neðan:
Því miður eru ekki mikið að frétta síðan 11. maí. Bókunarkerfið er komið í lag, en af öðrum málum er minna að frétta.
Staðan í Landeyjahöfn.
Það hafa gefist góðir dýpkunargluggar síðustu dagana og vikur en því miður er enn talsvert í að fullu dýpi verði náð. Álfsnes er væntanlegt í fyrramálið og mun dýpkun halda áfram næstu daga.
Staðan á mótornum.
Viðgerð er á áætlun. Við vonumst til þess að fá mótorinn til okkar eftir miðjan næsta mánuð. Í kjölfarið verður Herjólfur tekinn úr áætlun og áætlum við að sú vinna taki um fjóra sólahringa.
Varaskip
Ekki er enn ljóst hvort það verði Baldur eða Herjólfur III sem mun leysa Herjólf IV af. Við óskuðum eftir að fá Baldur til okkar um nýliðna helgi, en því miður gat ekki orðið af því. Við höfum kallað eftir því að fá varaskip til okkar sem allra fyrst til að aðstoða okkur með siglingar samhliða Herjólfi IV – og verði hjá okkur þar til mótorinn verður kominn í og Herjólfur IV kominn í fulla áætlun. Við væntum þess að staða þessara mála skýrist á allra næstu dögum og munum við miðla þeim upplýsingum um leið og þær liggja fyrir.Ólafur Jóhann Borgþórsson,
framkvæmdastjóri Herjólfs ohf.