Staðreyndir vegna óhapps í innsiglingu
Huginn Opf 20250130 160803
Huginn VE í fylgd Lóðsins og Þórs í gær. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Vinnslustöðin hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna óhapps sem varð við komu Hugins VE til Vestmannaeyja í gær, en skipið missti vélarafl í innsiglingunni. Yfirlýsinguna má lesa í heild sinni hér að neðan.

Í gær vildi það óhapp til að aðalvél Hugins drap á sér í innsiglingunni í Vestmannaeyjahöfn.  Fréttir af atburðinum eru misvísandi en atburðarásin var eftirfarandi:

  • Huginn var að koma af kolmunnamiðum við Færeyjar til löndunar. Venja er að slá af ferð skipa áður en í innsiglinguna er komið og var það gert.
  • Þegar komið var inn fyrir Klettsnef, inn í innsiglinguna, sló skipstjóri aftur af ferð skipsins en þá drapst á aðalvélinni. Líkleg ástæða þess var að stjórnbúnaður skrúfu (sem er tölvustýrður) bilaði og í kjölfarið varð þrýstingsfall á smurolíu á gír.  Skipið varð því stjórnlaust í innsiglingunni og stefndi í strand upp í Hörgeyrargarð. Þess ber að geta að stjórnbúnaður skrúfu er nýlegur og af fullkomnustu gerð.
  • Skipstjóri setti sig þegar í samband við Vestmannaeyjahöfn og Landhelgisgæsluna og óskaði aðstoðar.  Lóðsinn og björgunarskipið Þór fóru þegar af stað til aðstoðar.
  • Vélstjóri skipsins kom aðalvélinni aftur í gang en aftur drap hún á sér af sömu ástæðum og fyrr.
  • Til að forða því að skipið strandaði við Hörgeyrargarð varpaði áhöfnin akkeri sem dró mikið úr ferð þess. Skipið tók niðri, en tókst að losa sig með hliðarskrúfum og aðstoð björgunarskipa.
  • Þegar áhöfn Hugins og áhafnir Lóðsins og Þórs höfðu náð tökum á aðstæðum, hliðarskrúfur voru komnar í gang og taug komin á milli skipa, var sameiginleg ákvörðun tekin um að skilja akkeri og akkeriskeðju eftir á vettvangi.
  • Kafari hefur skoðað botn skipsins og er hann óskemmdur en málning er rispuð. Ekki er vitað til þess að tjón hafi orðið á lögnum en kafari mun skoða vettvang og undirbúa að sækja akkerið.
  • Lóðsinn dró Huginn síðan til hafnar og gat skipið veitt aðstoð með hliðarskrúfum.

 

Stjórnendur Vinnslustöðvarinnar þakka áhöfn Hugins sem og áhöfnum Lóðsins og björgunarskipsins Þórs fyrir rétt, fumlaus og örugg viðbrögð.

Nýjustu fréttir

Fullfermi á báðum togurum
Dýpkun tefst í Landeyjahöfn – uppfært
Framlag í Ferðasjóð íþróttafélaga tvöfaldast
Fullorðinsfimleikar hjá Rán
Tómas Bent með sigurmark Hearts
Tilboð langt undir áætlun í dýpkun Landeyjahafnar
Loðnan berst til Eyja
Nær sjötíu manns á þorrablóti Vinnslustöðvarinnar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.