Í dag var undirritaður samningur um framkvæmd yfirtöku Vinnslustöðvarinnar á útgerðarfyrirtækinu Ósi ehf. og fiskvinnslufyrirtækinu Leo Seafood ehf., félögum í eigu Sigurjóns Óskarssonar, skipstjóra og útgerðarmanns, og fjölskyldu hans.
Samningur um kaupin var gerður í janúar með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Stofnunin skilaði niðurstöðu í dymbilvikunni og gerði engar athugasemdir. Það gerði Fiskistofa heldur ekki.
Fram kom í greinargerð með ákvörðun Samkeppniseftirlitsins að fyrirtækin fari samanlagt með tæplega 7% af aflahlutdeild í þorskígildiskílóum, sem er undir 12% hámarki samkvæmt lögum.
Upplýsingar fást ekki um fjárhæðir í kaupsamningnum en næsta víst er að þetta séu ein stærstu ef ekki stærstu viðskipti í sögu útgerða og fiskvinnslu í Vestmannaeyjum.
Vinnslustöðin tekur við rekstrinum á fimmtudaginn kemur, á fyrsta degi sumars.
Sigurgeir B. Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar, lýsir mikilli ánægju með að kaupin hafi gengið eftir athugasemdalaust af hálfu samkeppnisyfirvalda og Fiskistofu. Ýmsir velta því fyrir sér hvort breytinga sé að vænta í rekstri Óss og Leo Seafood en framkvæmdastjórinn segir svo ekki vera:
„Við munum gera út Þórunni Sveinsdóttur áfram með áhöfninni sem þar er og engar breytingar eru heldur fyrirsjáanlegar í Leo Seafood. Félögin sem Vinnslustöðin er nú að kaupa eru vel rekin og góð. Þetta er stærsti viðburður sinnar tegundar í sögu Vinnslustöðvarinnar. Við kaupum sem svarar til 1% af aflaheimildum landsmanna í þorskígildum og nú bætast við 100 starfsmenn í VSV-samstæðuna þar sem fyrir eru um 370 manns á launaskrá.“
Úraskurðurinn:
https://www.vsv.is/media/4181/akvordun-13_2023.pdf
Þessi mynd var tekin í janúar sl. þegar kaupsamningur var undirritaður með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Frá vinstri: Daði Pálsson, framkvæmdastjóri Leo Seafood, Viðar Sigurjónsson, skipstjóri, Sigurjón Óskarsson og Sigurlaug Alfreðsdóttir, eiginkona hans, Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri VSV, Andrea Atladóttir, fjármálastjóri VSV, Þóra Hrönn Sigurjónsdóttir, fjármálastjóri Óss og Gylfi Sigurjónsson skipstjóri.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst