„Stór áfangi náðist í dag”
Vidlagafj 280525 Fb Laxey
Athafnasvæði Laxeyjar í Viðlagafjöru. Ljósmynd/Laxey

Í dag var greint frá því á stór áfangi hafi náðst hjá Laxey þegar steyptur var botninn í fyrsta fiskeldiskerið í áfanga 2 í Viðlagafjöru. „Þetta táknræna skref markar upphaf sýnilegrar uppbyggingar kerjanna, þó svo að vinna við áfangann hafi hafist snemma á þessu ári. Í hvert ker fara um 200 rúmmetrar af steypu og eru þau bæði umfangsmikil að stærð og krefjandi í framkvæmd. Hvert ker er 28 metrar í þvermál, rúmir 13 metrar á hæð og rúmar um 5.000 rúmmetra af sjó.

Líkt og í áfanga 1 verða alls átta ker reist í áfanga 2 og um er að ræða sömu gerð kerja og þar voru notuð, sem hafa sannað sig vel. Stefnt er að því að uppbygging þeirra hefjist í júní og mun hún standa yfir fram á haust. Verkið hefur gengið vel og markar þetta mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu fyrirtækisins,” segir enn fremur í fréttinni á heimasíðu Laxeyjar.

Nýjustu fréttir

Minnisvarði um Þór gæti fengið nýjan stað
Áfram Noregur í kvöld – Heimisáhrifin virka
Draumurinn orðinn að veruleika
Einstakt safn Magnúsar vakti forvitni á Goslokahátíð
Þrjár vikur í Þjóðhátíð – uppbyggingin hafin í Herjólfsdal
Sumarlesturinn hefur aldrei farið betur af stað
Áform um þrjú ný einbýlishús við Reglubraut
Evrópusambandið, meira en tollabandalag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.