Stóri plokkdagurinn 2023

Sunnudaginn 30. apríl n.k. er Stóri plokkdagurinn og í tilefni dagsins verður almennur hreinsunardagur á Heimaey. Hreinsum náttúruna um leið og við gerum umhverfið okkar fallegt fyrir viðburði, gesti og útiveru komandi sumars.

Gaman er að gera daginn að fjölskyldudegi þar sem allir – mamma, pabbi, amma, afi, og krakkarnir – sameinast um að gera Heimaey enn fallegri.

Mæting er á Stakkagerðistún kl. 11.00 þar sem pokum og plokktöngum (fyrir fyrstu sem koma) verður úthlutað. Klukkan 12:30 verður svo grillveisla í boði Bæjarstjórnar Vestmannaeyjabæjar á sama stað.

Einnig er skorað á íbúa og fyrirtæki að þeir hreinsi lóðir sínar og nærumhveri og nærumhverfi. Þannig gerum við í sameiningu bæinn okkar hreinan og fagran fyrir sumarið.

Á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar koma fram helstu trixin í plokkbókinni:

  • Finna sér svæði til að plokka á og hvetja fjölskylduna til að taka þátt. Búa jafnvel til viðburð með góðum hópi.
  • Gott er að vera með ruslapoka, hanska, plokktöng og bakpoka undir aukapoka.
  • Klæða sig eftir aðstæðum.
  • Koma afrakstrinum á viðeigandi stofnun.
  • Senda tölvupóst á sveitarfélagið sitt og láta sækja ef magnið er mikið.
  • Gæta fyllstu varúðar og brýna fyrir börnum að láta nálar og aðra hættulega hluti vera, en tilkynna til foreldra eða umsjónarmanna svo mögulegt sé að fjarlægja þá.
  • Vera í góðu skapi og helst með einhverjum skemmtilegum.

Félagasamtök og hópar sem vilja taka þátt í deginum og fá úthlutað svæði er bent á að hafa samband á netfangið umhverfissvid@vestmannaeyjar.is

Með fyrir fram þökk,

Umhverfis- og framkvæmdasvið Vestmanneayjabæjar

Nýjustu fréttir

Gleðilegan kjördag, kæru vinir
Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma
Gleðilegan kjördag
Spennandi prófkjör Sjálfstæðismanna í Eyjum
Pílan: Deildarkeppni lokið – Útsláttur hefst
Fasteignaumfjöllunin – útsýni á heimsmælikvarða
Fyrir þig en ekki sjálfa sig
Laskað lið ÍBV tapaði gegn Val
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.