Laxey greinir frá því að stórseiðahús félagsins sé komið í rekstur eftir að flutningi seiða í húsið lauk 5. júní. Að sögn félagsins markar það mikilvægan áfanga í uppbyggingu fyrirtækisins og styrkir framleiðslugetu þess til framtíðar.
Samkvæmt upplýsingum frá Laxey voru fyrstu seiðin flutt úr seiðastöð félagsins í nýja stórseiðahúsið þann 27. maí. Flutningi alls hópsins lauk síðan 5. júní og er húsið nú komið í reglulegan rekstur.
Í tilkynningu félagsins segir að stórseiðahúsið sé mikilvæg viðbót við áframeldisstarfsemina í Viðlagafjöru. Með auknu rými fyrir stærri fisk fyrr á framleiðsluferlinu skapist meiri sveigjanleiki í rekstri, betri nýting innviða og skilvirkara framleiðsluflæði.
Stórseiðahúsið samanstendur af átta kerum sem hvert um sig rúmar 1.050 rúmmetra af vatni, eða samtals 8.400 rúmmetra. Jafnframt er greint frá því að húsið hafi verið reist á aðeins tíu mánuðum og er starfsfólki, verktökum, birgjum og samstarfsaðilum þakkað fyrir þátt sinn í verkefninu.