Þór Tói Vídó (Tói Vídó) er fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum. Hann hefur tekið ljósmyndir frá árinu 2009 og fangar ótrúlega fallega sýn aðallega af náttúru eyjanna og lífríki allt í kring. Hann hefur einnig tekið töluvert af ljósmyndum af meginlandinu. Tói Vídó er sonur Sigga Vídó og Erlu Vídó sem flestir Vestmanneyingar ættu að þekkja.
Einnig er samstarfsmaður Tóa, Óskar Axel Óskarsson uppalinn í Vestmannaeyjum. Hann hefur tekið töluverðan þátt í félagsstörfum í eyjum á sínum yngri árum, hefur staðið myndarlega að styrktarsjóði sem hefur stutt við fólk með skerta starfsgetu það má sjá nánar á facebook síðu Styrktarsjóðs Sigurbjargar og hefur Eyjamaðurinn Heimir Hallgríms einnig lagt málefninu lið, ætlunin er að halda þessu verkefni áfram. Óskar hefur fengið til liðs við sig Tóa Vídó, þar sem hagnaður af sölunni á sýningunni verður notaður til þess að halda því starfi áfram, sem Óskar hefur undanfarið barist fyrir.
Tói Vídó og Óskar Axel hafa verið félagar frá æskuárum og að sögn Óskars; „þegar ég sá þessar fallegu myndir á facebook síðu minni, mánuð eftir mánuð, fannst mér að Vestmanneyingar ættu að geta notið verka listamannsins Tóa Vídó.“ Það merkilega í þessari sýningu er að sum verkin eru prentuð á striga, jafnframt olíumálverk af sömu verkum og prentað á ýmsan skemmtilegan varning.
Félagarnir Tói Vídó og Óskar Axel bjóða þér til sannkallaðrar veislu sem enginn má láta fram hjá sér fara.
Verið velkomin !
Sýningin verður haldin að Baldurshaga beint á móti Landsbankanum, hefst fimmtudaginn 2. júlí kl.18:00 – 23:00, föstudag 3. júlí kl.11:00 – 23, laugardag 4. júlí kl.11:00-23:00 og sunnudaginn 5. júlí kl.11:00 – 18:00. Boðið verður upp á léttar veitingar.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.