Oddfellowstúkurnar Vilborg og Herjólfur Vestmannaeyjum afhentu í dag styrki að upphæð 20 milljónir króna til verkefna og málefna sem úthlutað hefur verið í nærsamfélaginu. Við athöfnina fluttu fulltrúar stúkanna stutt ávörp þar sem meðal annars var komið inn á mikilvægi þess að styðja við samfélagið í Vestmannaeyjum og leggja sitt af mörkum til góðra málefna.
Styrkirnir eru veittir úr Styrktar- og Líknarsjóði Oddfellowa. Árið 2025 fengu stúkurnar Herjólfur og Vilborg úthlutað fjármagni úr sjóðnum til að styðja líknar- og mannúðarmál í Vestmannaeyjum. Sex manna nefnd skipuð fulltrúum beggja stúkna fór yfir verkefni og tók ákvörðun um úthlutunina.
Meðal þeirra sem hlutu styrki voru Björgunarfélag Vestmannaeyja, Heilbrigðisstofnun Suðurlands í Vestmannaeyjum, Hraunbúðir, þjónustuíbúðir Kjarnans, Dagdvölin Bjargið og Slökkvilið Vestmannaeyja.
Björgunarfélag Vestmannaeyja fékk meðal annars intercom-búnað fyrir björgunarbátinn Þór, AED-hjartastuðtæki, sérhæfðar börur, björgunargalla og Starlink-fjarskiptabúnað.
Heilbrigðisstofnun Suðurlands í Vestmannaeyjum fékk meðal annars eyrnasmásjá fyrir heilsugæsluna, loftdýnu og blóðgastæki fyrir sjúkradeildina, en Hraunbúðir fengu meðal annars morfíndælur, lyftistól, vigtarstól og hvíldarstóla.
Slökkvilið Vestmannaeyja fékk ný reykköfunartæki og öryggisbúnað, auk þess sem búnaður var afhentur Dagdvölinni Bjarginu og Kjarnanum.
Samkvæmt upplýsingum frá Oddfellowstúkunum hefur allur búnaðurinn þegar verið keyptur og tekinn í notkun. Styrkirnir eru því þegar farnir að nýtast þeim aðilum sem sinna mikilvægu öryggis-, heilbrigðis- og velferðarstarfi í samfélaginu.
Að lokinni athöfn voru léttar veitingar í boði fyrir gesti. Óskar Pétur Friðriksson tók myndirnar.