Suðurlandsslagur í Eyjum
ÍBV fær Selfoss í heimsókn í kvöld
Úr leik ÍBV og Fram fyrr í vetur. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Olís deild karla fer aftur af stað í dag eftir hlé og verða þrír leikir í kvöld. Selfoss kemur í heimsókn í Íþróttamiðstöðina í Vestmannaeyjum. Flautað verður til leiks klukkan 18:00 og ljóst að um sannkallaðan Suðurlandsslag er að ræða. Leikmenn ÍBV eru sagðir klárir í slaginn og allt bendir til þess að hart verði barist um stigin mikilvægu.

Mikilvægur leikur fyrir bæði lið

Eyjamenn sitja í 6. sæti Olís deildarinnar með 17 stig eftir 15 leiki. Liðið hefur unnið átta leiki, gert eitt jafntefli og tapað sex og markatalan er nánast slétt — 464 mörk skoruð og 463 fengin. Selfoss er í 10. sæti með 9 stig og þarf nauðsynlega á stigum að halda til að færa sig ofar í töflunni. Selfyssingar hafa skorað 460 mörk en fengið á sig 501 og því ljóst að verkefnið í Eyjum verður krefjandi.

Með sigri getur ÍBV styrkt stöðu sína í baráttunni um úrslitakeppnissæti, á meðan gestirnir leita leiða til að snúa gengi sínu við. Reikna má með góðri mætingu og öflugum stuðningi á heimavelli, en stuðningsmenn eru hvattir til að mæta og láta í sér heyra þegar liðin mætast.

Leikir dagsins:

Dagsetning Tími Umferð Völlur Dómarar Lið
Mið. 04. feb. 26 18:00 16 Kórinn HK – FH
Mið. 04. feb. 26 18:00 16 Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja ÍBV – Selfoss
Mið. 04. feb. 26 18:30 16 Skógarsel ÍR – KA

Nýjustu fréttir

Minnisvarði um Þór gæti fengið nýjan stað
Áfram Noregur í kvöld – Heimisáhrifin virka
Draumurinn orðinn að veruleika
Einstakt safn Magnúsar vakti forvitni á Goslokahátíð
Þrjár vikur í Þjóðhátíð – uppbyggingin hafin í Herjólfsdal
Sumarlesturinn hefur aldrei farið betur af stað
Áform um þrjú ný einbýlishús við Reglubraut
Evrópusambandið, meira en tollabandalag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.