Það var líf og fjör í Vestmannaeyjum í dag þegar fjölskyldur og gestir tóku þátt í fjölbreyttri dagskrá sjómannadagsins. Dorgveiðikeppni SJÓVE og Sjómannadagsráðs á Nausthamarsbryggju naut mikilla vinsælda og á Vigtartorgi var boðið upp á fjölbreytta skemmtun fyrir alla aldurshópa.
Eyjafréttir voru á staðnum og hér má sjá myndir og myndband frá deginum þar sem gleði, leikur og sjómannadagsstemning settu svip sinn á mannlífið. Myndasmiðir eru Óskar Pétur Friðriksson og Halldór B. Halldórsson.