Helgi Ólafsson gengur til liðs við Taflfélag Vestmannaeyja

Stórmeistarinn Helgi Ólafsson er genginn í Taflfélag Vestmannaeyja á ný. Frá þessu er greint í frétt á vefnum skak.is. Hjá TV steig hann sín fyrstu skref á skáksviðinu á sjöunda áratugnum. Helga þarf vart að kynna fyrir íslenskum skákmönnum en afrekslisti hans er bæði langur og glæsilegur. Helgi var, ásamt Jóhanni Hjartarsyni, Jóni L. Árnasyni og […]
Sterkt atskákmót í tilefni 50 ára goslokaafmælis

9. september nk. kl. 12.00 -18.00 verður haldið 50 ára gosloka skákmót í opna rýminu í Þekkingarsetri Vm. að Ægisgötu 2. Taflfélag Vestmannaeyja stendur fyrir mótinu, en Vestmannaeyjabær er helsti stuðningsaðili þess ásamt nokkrum fyrirtækjum. TV hefur áður staðið fyrir sterkum minningar atskákmótum á sama stað, Beddamótinu 11. maí 2019 og Pallamótinu 5. júní 2021. […]
Karl Gauti Hjaltason formaður Taflfélags Vestmannaeyja

Aðalfundur Taflfélags Vestmannaeyja var haldinn í skákheimili TV 1. júní sl. Í skýrslu stjórnar kom fram að helstu póstar í starfsemi félagsins voru Skákþing Vestmannaeyja 2023 , skákkennsla fyrir krakka í Grunnskóla Vm. og þátttaka í Íslandsmóti skákfélags 2022-2023. TV sendi þrjár sex manna sveitir á Íslandsmót skákfélaga sem fram fór í Fjölnishöllinni í Grafarvogi í okt. 2022 og mars 2023 […]
Hallgrímur Steinsson, Skákmeistari Vestmannaeyja 2022

Skákþingi Vestmannaeyja 2022 sem hófst 31. mars lauk 8. maí í skákheimili Taflfélags Vestmannaeyja að Heiðarveg 9. Keppendur á mótinu voru 10 talsins á öllum aldri og var 65 ára aldursmunur á yngsta og elstu keppendum. Þetta sýnir að skákin spyr ekki um aldur þeirra sem tefla og taka þátt í skákmótum. Tefldar voru níu […]
Skákþing 2022, skákkennsla og góður árangur á Íslandsmóti skákfélaga

Taflfélag Vestmannaeyja var með þrjár 6 manna sveitir á mjög fjölmennu Íslandsmóti skákfélaga 2021-2022, en seinnihluti mótsins fór fram í Fjölnishöllinni í Grafarvogi 5.-6. mars sl. Sveitirnar þrjár skipaðar félagsmönnum TV sem ýmist eru búsettir í Eyjum eða á meginlandinu. Alls voru tefldar sjö umferðir á mótinu, en fjórar fyrstu fóru fram í október 2021. Alls tóku […]
Skákkennsla TV í fullum gangi

Taflfélag Vestmannaeyja hefur undanfarin ár haldið úti skákkennslu fyrir ungmenni í GRV í skákheimilinu að Heiðarvegi 9. Skákæfingar eru alla mánudaag og fimmtudaga kl. 17:30- 18:30. Einnig er í gangi skákmótaröð fyrir krakka alla miðvikudaga kl. 17:30 á sama stað. Leiðbeinendur eru Sæmundur Einarsson og Guðgeir Jónsson stjórnarmenn í TV ásamt Eyþór Daða Kjartanssyni. Njóta […]
Góður árangur Taflfélags Vestmannaeyja á Íslandsmóti skákfélaga

Fyrrihluti Íslandsmóts skákfélaga 2021-2022 fór fram í Egilshöll-Fjölnishöll í Grafarvogi helgina 30. sept.- 3. október sl. Síðari hluti mótsins fer fram á sama stað í mars 2022. Keppt var í 5. deildum, þe. úrvalsdeild og 1.-4. deild. Alls tóku 49 skáksveitir þátt í mótinu og voru sex keppendur í hverri sveit, en átta í úrvalsdeild. […]
Vignir Vatnar Stefánsson sigraði á Pallamótinu í Eyjum

Öflugt atskákmót Pallamótið – til minningar um Pál Árnason, múrara (1945-2021) fór fram í Vestmannaeyjum laugardaginn 5. júní sl. í húsnæði Þekkingarseturs Vm. Keppendur voru 50 og voru tefldar sjö umferðir og umhugsunarími á skák 10 mín. og 5 sek á leik. Mótið hófst kl. 12 á hádegi af lokinni formlegri setningu. Af þessum 50 […]
Öflugt atskákmót í Eyjum á laugardag

Taflfélag Vestmannaeyja heldur atskákmót í Eyjum á laugardaginn 5. júní nk. kl. 11.45-16.30. Mótið er jafnframt til minningar um Pál Árnason, múrara (1945-2021) sem var traustur félagi í TV í um langt árabil. Mjög góð þáttataka verður í mótinu og eru skráðir keppendur hátt í 50 talsins, þar af nokkrir stórmeistarar. Keppendur eru á öllum […]
Pallamótið – öflugt atskákmót í Eyjum laugardaginn 5. júní nk.

Taflfélag Vestmannaeyja hefur ákveðið að halda atskákmót í Eyjum laugardaginn 5. júní nk. Mótið er jafnframt til minningar um Pál Árnason, múrara ( 1945-2021) sem var traustur félagi í TV í um langt árabil. Þrátt fyrir erfið og langvarandi veikindi tók Páll þátt í Skákþingi Vm. 2018, 2019 og 2020. Á árinu 2021 verða liðin […]
Sigurjón Þorkellsson Vestmannaeyjameistari í skák

Skákþingi Vestmannaeyja lokið, þátttaka var góð en 12 skráðu sig til leiks. Guðmundur Kjartansson, alþjóðlegur meistari, skráði sig til leiks, en fyrir mótið vantaði hann lítið af stigum til að ná stórmeistaratitli. Guðmundur gerði sér lítið fyrir og vann allar sínar skákir á mótinu og stendur uppi sem sigurvegari mótsins. Vestmannaeyjameistari er svo Sigurjón Þorkellsson […]
Fjölbreytt starfsemi hjá Taflfélagi Vestmannaeyja

Aðalfundur Taflfélags Vestmannaeyja fór fram 2. febrúar sl. í skákheimili TV að Heiðarvegi 9. Þá var nýlokið við að skipta út gólfefnum og komið vandað parket. Eftir þessar breytingar er skákheimilið enn glæsilegra. Starfsemi síðasta árs markaðist að nokkru af Covid 19. Skákþing Vm. 2020 með 10 keppendum lauk í byrjun mars sl. og slapp við Covid. Skákkennsla ungmenna raskaðist nokkuð í fyrravetur […]
Taflfélag Vestmannaeyja fékk stuðning vegna Covid-19

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur úthlutað 50 milljónum kr. til æskulýðsfélaga sem standa fyrir skipulögðu starfi fyrir börn og ungmenni. Styrkir eru veittir vegna tekjutaps þar sem hætt hefur verið við viðburði, mót eða félög hafa þurft að skerða starfsemi vegna áhrifa COVID-19. Meðal þeirra félaga sem fengu styrk er Taflfélag Vestmanneyja. „Æskulýðsstarf hefur ótvírætt forvarna- […]
Starfsemi Taflfélagsins að komast í fullan gang

Starfsemi Taflfélags Vestmannaeyja hefur ekki varið varhluta af áhrifum COVID19 eins og flest annað í þjóðfélaginu. Miðvikudaginn 3. febrúar nk. kl. 17.30 verður aðalfundur Taflfélagsins fyrir síðasta starfsár og þar kosin ný stjórn, greint frá starfinu og hvað er fram undan. Skákheimili TV að Heiðarvegi 9 hefur fengið nýlega fengið góða andlitslyftingu , skipt var um gólfefni á salnum sem er 100 […]
Jólamót skákskóla Taflfélagsins

Laugardaginn 12. desember sl. fór fram jólamót hjá krökkum í GRV sem tekið hafa þátt í skákkennslu á vegum Taflfélags Vestmannaeyja að Heiðarvegi 9 nú í haust. Þátttaka í jólamótinu var góð og voru keppendur 18 talsins. Teflt var í einum opnum flokki , alls sjö umferðir. Allir stóðu sig með prýði og fór mótið mjög vel fram að […]
Skákæfingar krakka hjá Taflfélagi Vestmannaeyja komnar í gang

Taflfélag Vestmannaeyja fer af af stað með skákæfingar fyrir krakka í Grunnskóla Vm. í skákheimili TV að Heiðarvegi 9 á ný fimmtudaginn 19. nóvember. Yngri hópurinn kl. 16.30- 17.30 og eldri hópurinn kl. 17.45 – 18.45. Skákkennslan og æfingar verða síðan á mánudögum og fimmtudögum á þessum sama tíma. Umsjón með skákkennslunni sem hófst í […]
Taflfélag Vestmannaeyja hlaut styrk vegna Covid-19

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur úthlutað fimmtíu milljónum kr. til félaga sem sem standa fyrir skipulögðu starfi fyrir börn og ungmenni. Ráðstöfun þessi er til samræmis við þingsályktun um sérstakt tímabundið fjárfestingarátak til að vinna gegn samdrætti í hagkerfinu í kjölfar COVID-19. Taflfélag Vestmannaeyja var meðal þeirra sem fengu styrk og hlutu 300.000 krónur. Styrkir eru […]
Sigruðu landsbyggðarkeppnina í skák

Sveit frá Taflfélagi Vestmannaeyja tryggði sér sigur í landsbyggðarkeppninni á Íslandsmóti grunnskólasveita (1-10. bekkur) sem fram fór í Rimaskóla í gær. Upphaflega stóð til að taka þátt í Íslandsmóti barnaskólasveita (1.-7. bekkur) sem fram fór á laugardag en sveitin komst ekki frá Eyjum þar sem ófært var með Herjólfi framan af degi. Strákarnir voru því […]
Taflfélag Vestmannaeyja keppti á óopinberu Norðurlandamóti

Sveit Taflfélags Vestmannaeyja hafnaði í 43. sæti á óopinberu Norðurlandamóti skákfélaga í atskák sem fram fór á netinu um páskahelgina. A-sveit Skákfélags Selfoss og nágrennis (SSON) sigraði mótið. Alls tóku 67 sveitir þátt í mótinu. Umhugsunartími var 10 mínútur auk tveggja sekúndna til viðbótar fyrir hvern leik. Teflt var á sex borðum í hverri umferð […]
Sigurður Arnar Magnússon stigahæsti nýliðinn

Ný alþjóðleg skákstig komu út í dag, 1. apríl. Hjörvar Steinn Grétarsson er stigahæsti skákmaður landsins. Lítið er um reiknuð mót nú vegna Covid-19. Sigurður Arnar Magnússon hjá Taflfélagi Vestmannaeyja er stigahæstur nýliða og Matthías Björgvin Kjartansson hækkar mest frá mars-listanum. Litlar breytingar eru á listanum nú vegna samkomubannsins. Hjörvar Steinn Grétarsson (2579) er langstigahæsti skákmaður landsins. Í næstu […]