Skákþing 2022, skákkennsla og góður árangur á Íslandsmóti skákfélaga
Sæmundur Einarsson, tekur við verðlaunabikar skáksveitar TV en félagið varð í 2. sæti í 1. deild á Íslandsmóti skákfélaga 6. mars sl.

Taflfélag Vestmannaeyja var með þrjár 6 manna sveitir á mjög fjölmennu  Íslandsmóti skákfélaga 2021-2022,  en seinnihluti mótsins fór fram í Fjölnishöllinni í Grafarvogi 5.-6. mars sl.

Sveitirnar þrjár skipaðar félagsmönnum TV sem  ýmist eru búsettir í Eyjum eða á meginlandinu.  Alls voru tefldar sjö umferðir á mótinu, en fjórar fyrstu fóru fram í október 2021. Alls tóku um 30 félagar í TV í mótinu í heild.

TV var með sveit í 1. deild  sem voru átta lið. TV var  í forystu allt fram í síðustu umferð og endaði að lokum með 11 stig og 26 vinninga. Sigursveit KR var aftur á móti með 11 stig og 26,5 vinning og færist hún upp í úrvalsdeild. Munurinn gat ekki orðið minni!. Ekki var reiknað  með því að skáksveit TV myndi ná þetta langt og árangurinn því mjög góður.  Þá var TV með sveit í 3ju deild á Íslandsmótinu  þar sem liðið varð í 5.-6. sæti af átta sveitum. Þessu til viðbótar var TV með sveit í 4. deild þar sem voru 15 sveitir.  Sveit TV   lenti  í 9. sæti af  15. sem er mjög þokkalegur árangur.   Liðsstjórar TV voru Þorsteinn Þorsteinsson í 1. deild, Hallgrímur Steinsson form.  TV í .3. deild og Ólafur Hermannsson í 4. deild.

Skákkennsla ungmenna á vegum TV fer fram á mánudögum kl. 17.30  og fimmtudögum kl. 17.30 í skákheimili Taflfélagsins að Heiðarvegi 9  þar sem öll aðstaða til skákkennslu og keppni er til fyrirmyndar. Sæmundur Einarsson og Guðgeir Jónsson félagsmenn í TV sjá um kennsluna.

Framundan er Skákþing Vestmannaeyja 2022  sem fer fram í skákheimili TV að Heiðarvegi 9. Teflt verður í einum flokki og er umhugsunartími  á skákina  90 mínútur á hvorn keppenda auk 30 sek. á leik.  Teflt verður á fimmtudögum kl. 19.30 og á sunnudögum kl. 13.00.  Miðað er við að  Skákþingið  hefjist í lok mars eða byrjun apríl. Nánari upplýsingar gefur Sæmundur Einarsson, skákstjóri í síma 611-2284 eða á netfanginu saemi.einars@gmail.com.

Nýjustu fréttir

Treysti sér ekki til að vera heima og horfa á leikinn
Gagnrýna samning bæjarins við rekstraraðila heilsuræktar
Lönduðu fullfermi í Grindavík
Líf og fjör á Suðurlandi: Barnamenningardagar framundan
Tanja er íþróttamaður mánaðarins
Tannverndarvika
Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Útboð Vestmannaeyjabæjar um heilsurækt aftur til kærunefndar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.