Takk fyrir allan meðbyrinn
Untitled Design
Starfsfólk Vöruhússins. Ljósmynd/aðsend.

Kæru vinir.  Nú er sumarið senn á enda og haustið að taka við. Þetta verður því annar vetur Vöruhússins og við erum ótrúlega spennt að taka á móti öllum okkar gestum áfram í vetur með fjölbreytt úrval af spennandi réttum og ljúffengum drykkjum.

Við viljum vekja athygli á allri okkar þjónustu en Vöruhúsið býður ekki einungis upp á mat í sal heldur hefur einnig verið mjög vinsælt að sækja matinn til okkar í gegnum útisvæðið okkar. Að auki bjóðum við upp á heimsendan mat eftir kl. 17 á daginn, það nýtist mörgum vel.

Í vetur munum við halda áfram okkar alhliða þjónustu, vikulegum tilboðum sem við birtum nær daglega á miðlunum okkar ásamt sérréttaseðlum og drykkjum um helgar.

Við viljum því hvetja allt heimafólk til að taka þátt með okkur áfram líkt og síðasta vetur. Við munum auglýsa ýmsar nýjungar á næstu vikum og mánuðum svo fylgist spennt með okkur á öllum helstu samfélagsmiðlum undir “Voruhusidrestaurant”.

Það styttist í að við kynnum næstu nýjung sem við vonumst til að lukkist vel en fastir liðir í vetur verða auðvitað brunchinn okkar ljúfi, Jólaþorp Vöruhússins ásamt óvæntum uppákomum fyrir alla fjölskylduna.

Takk fyrir allan meðbyrinn, hlýjuna og ábendingarnar. Það er ekkert Vöruhús án ykkar. Sjáumst í Vöruhúsinu allt árið um kring, segir í tilkynningu.

Nýjustu fréttir

Vestmannaeyjar Open 2026 í pílukasti fór fram um helgina
ÍBV tapaði á heimavelli gegn ÍA
Hlynur Andrésson hljóp maraþon á EM í morgun
Aníta Óðinsdóttir – Tekur þátt í Reykjavíkurmaraþoninu í fyrsta sinn
Nýbyggingin við Tangagötu tekur á sig mynd
Mikilvæg stig í húfi hjá ÍBV á Hásteinsvelli
Íslandsmót golfklúbba í 2. deild karla hefst í Eyjum á morgun
Minna á lokanir við Viðlagafjöru
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.