Talið niður til Þjóðhátíðar

Þá eru ekki nema 11 dagar til Þjóðhátíðar og undirbúningurinn í Herjólfsdal í fullum snúningi.

Dagskráin í ár er ekki af verri endanum en meðal þeirra flytjenda sem koma fram eru Bríet, Páll Óskar, FM95Blö, Stuðlabandið, XXX Rottweiler hundar, Sprite Zero Klan og Jóhanna Guðrún. Að auki mun Eurovision-farinn Diljá troða upp í fyrsta skiptið í Dalnum.

Magnús Kjartan sér um að halda hátíðargestum kátum í brekkusöngnum og Emmsjé Gauti frumflytur Þjóðhátíðarlagið „Þúsund hjörtu” á kvöldi föstudags, en það má hlusta á lagið hér.

Hér má sjá myndir frá deginum í dag:

Brúin nýmáluð og glæsileg.
Eldur verður borinn að brennu á föstudeginum.
Hérna verður mikið stuð.
Lokað var fyrir umsóknir á tjaldsvæðum í morgun.
Þessar dúfur bíða spenntar við litla sviðið.
Aðeins 11 dagar í Þjóðhátíð.
Hægt verður að sækja sér næringu í matartjaldinu.

 

 

Nýjustu fréttir

Draumurinn um bikarúrslit hjá ÍBV úti – Tap gegn Þrótti R. á útivelli
Eyjamenn vilja geta keypt Laxey-lax
Vestmannaeyskt námsefni nú fáanlegt til útláns
Hraunbúðarmálið: Segja að tryggja verði réttaröryggi sjúkraliða
Leikskrá knattspyrnudeildar ÍBV komin út
Bærinn vissi ekki af úttektinni á Hraunbúðum
Lottóappið heldur áfram að gleðja landsmenn!
Omar Sowe fær tveggja leikja bann
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.