Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í morgun mann á þrítugsaldri til greiðslu 950 þúsund króna í sekt og svipti hann ökuleyfi í 3 ár og tíu mánuði fyrir ítrekaðan akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna.
Maðurinn var tekinn átta sinnum vegna aksturs undir áhrifum fíkniefna á rúmlega þriggja mánaða tímabili eða frá 22. mars 2008 til 4. júlí 2008. Oftast var hann undir áhrifum amfetamíns en einnig MDMA og kókaíns.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst