Þess virði að missa af Herjólfsferð
Slippurinn. 10 ára.

Slippurinn fagnar 10 ára afmæli og bauð til afmælishátíðar í dag að því tilefni. Opið var á barinn fyrir gesti og þjónar gengu um og buðu gestum upp á frumlega smárétti sem voru hver öðrum betri.

Gísli Matthías, kokkur Slippsins og eigandi, stiklaði á stóru yfir ótrúlega magnaða sögu staðarins og lýsti því þrekvirki sem hann, og fjölskyldan öll, stóðu í til að geta kallað fram tilætluð hughrif með arkítektúr og matargerð.

Ljóst er að hugsjón staðarins um sjálfbærni og nýtingu hráefnis úr heimabyggð hefur hlotið verðskuldaða athygli á heimsvísu og mega Vestmannaeyingar vera stoltir af því að hýsa veitingastað sem býr yfir slíku hugverki.

Auk Gísla Matthíasar sjálfs, tóku til máls, Íris Róbertsdóttir, Páll Magnússon, Njáll Ragnarsson, Gísli kokkur og Andri Snær Magnason, rithöfundur. Sá síðastnefndi sagðist hafa misst af Herjólfsferð heim oftar en einu sinni vegna þess að það væri bara svo erfitt að slíta sig frá borðinu á Slippnum.

Veitingar í fljótandi og föstu formi voru bornar fram
Gísli Matthías
Gísli Matthíasson og Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri
Andri Snær játaði matarást sína á Gísla Matthíasi
Gísli kokkur sem starfaði á Slippnum fyrstu þrjú sumurin
Njáll Ragnarsson vann hjá Fiskmarkaðnum þegar Slippurinn opnaði
Páll Magnússon ræddi bestu eftirrétti í heimi og hvernig þeir væru allir samankomnir á Slippnum.

Nýjustu fréttir

Tengdadæturnar  Sigurlaug, Emma og Inga létu til sín taka
Frábær skráning á sundnámskeið á vegum Vestmannaeyjabæjar
Framleging á flugi samþykkt fram í miðjan apríl
Aleksandar Linta nýr þjálfari Eyjamanna 
Ágúst Gísli kom, sá og sigraði
Fótboltaskóli ÍBV og Heildverslun Karls Kristmanns
Gestum boðið upp á kaffi og köku í sundlauginni
Landað fyrir páskastopp
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.