Þokkalega kátur með veiðiferðina
Landad Ur Vestmannaey Ve 22 Jul
Landað úr Vestmannaey VE. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Vestmannaey VE landaði fullfermi í Eyjum á miðvikudag. Aflinn var mest ýsa ásamt ufsa og þorski, að því er segir í frétt á fréttasíðu Síldarvinnslunnar.

Birgir Þór Sverrisson skipstjóri sagðist vera þokkalega kátur með veiðiferðina. „Haldið var til veiða seinni partinn á sunnudag og byrjað að veiða í Reynisdýpinu. Þar var heldur lítið að hafa og því var haldið á Síðugrunn. Á Síðugrunni endurtók sagan sig og þar var afar rólegt fiskirí. Við færðum okkur á Öræfagrunn og þar fannst fiskur og allt gekk vel nema hvað okkur reyndist erfitt að finna ufsa eins og reyndar oft áður. Hér um borð eru allir kátir og í reynd yfir engu að kvarta nema vöntuninni á ufsanum,“ sagði Birgir Þór.

Bergey VE kom til löndunar í Eyjum í gær og var aflinn mest ýsa og þorskur og einnig dálítið af ufsa með. Jón Valgeirsson skipstjóri sagði að veiðiferðin hefði gengið nokkuð vel. „Við héldum beint á Ingólfshöfðann og vorum þar allan tímann í blíðunni,“ sagði Jón.

Gullver NS landaði síðan í heimahöfn á Seyðisfirði í gær. Aflinn var 80 tonn, mest þorskur og síðan einnig ýsa. „Við ætluðum að leggja höfuðáherslu á ýsuveiði en erfiðlega gekk að finna ýsuna. Við hófum veiðar á Skrúðsgrunni, síðan var haldið á Breiðdalsgrunn, þá í Litladýpi og loks á Gauraslóð. Miðað við tímann sem túrinn tók var hann ágætur og veðrið var sallafínt allan tímann en það hefði mátt vera meira af ýsunni,“ sagði Hjálmar Ólafur.

Vestmannaey og Gullver héldu á ný til veiða í gærkvöldi og Bergey hélt til veiða í morgun, segir í fréttinni.

Nýjustu fréttir

ÍBV tapaði heima í einvíginu gegn Haukum
Óþolandi óvissa með samgöngur til Vestmannaeyja
Fyrirliðinn lék sinn 300. deildarleik
Baldur leysir Herjólf af
Eyjafréttir standa við „samsuðuna“
Vonast til að dýpkun hefjist á fimmtudag
Ung eyjamær sigraði upplestrarkeppnina
Fiskeldið á fleygiferð í byrjun árs
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.