Þrjú lið frá ÍBV í bikarúrslitum um helgina
4. flokkur kvenna. Mynd/ÍBV handbolti

Þrjú lið frá ÍBV í handbolta munu spila í bikarúrslitum Powerade bikarsins um helgina. Þau munu öll keppa við Val og fara leikirnir fram á Ásvöllum í Hafnarfirði.

Þriðji flokkur kvenna tryggði sér sæti í bikarúrslitum á sunnudaginn þegar þær unnu Gróttu í Eyjum, 39-33, eftir að hafa verið yfir í hálfleik, 22-14. 

Þriðji flokkur karla vann Aftureldingu í Eyjum, í undanúrslitum, með sex mörkum, 35-29 eftir að hafa verið yfir 13-12 í hálfleik. 

Fjórði flokkur kvenna vann Hauka í Eyjum með fimm mörkum, 22-17. Staðan í hálfleik var 9-8 fyrir ÍBV.

Leiktímana má sjá hér að neðan:

4. fl. kvk föstudaginn kl. 18:00.

3. fl. kvk sunnudaginn kl. 14:00

3. fl. kk sunnudaginn kl. 16:30

 

 

Nýjustu fréttir

Elís Þór æfði með A-landsliðinu
Treysti sér ekki til að vera heima og horfa á leikinn
Gagnrýna samning bæjarins við rekstraraðila heilsuræktar
Lönduðu fullfermi í Grindavík
Líf og fjör á Suðurlandi: Barnamenningardagar framundan
Tanja er íþróttamaður mánaðarins
Tannverndarvika
Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.