Tillaga að breyttu deiliskipulagi að Strandvegi 51 samþykkt
7. september, 2023

Umhverfis- og skipulagsráð samþykkti í vikunni tillögu að breyttu deiliskipulagi að Strandvegi 51 og vísaði málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Ein athugasemd barst ráðinu þar sem meðal annars er farið fram á að lögum sé fylgt vegna breytinga á deiliskipulagi, þá m.a umfang hússins, lóðamörk og að eitt bílastæði skuli fylgja hverri íbúð. Verði þessum lögum ekki framfylgt verði skipulagið kært til úrskurðarnefndar skipulagsmála.

Ráðið felur skipulagsfulltrúa að ræða við lóðarhafa varðandi að uppfæra teikningar sem sýna glugga í lóðamörkum sem er óheimilt skv. byggingarreglugerð 112/2012.

Svarbréf til bréfritara vegna skipulagsbreytinga við Strandveg 51:

Árið 2022 lagði lóðarhafi við Strandveg 51 fram tillögur að breyttu deiliskipulagi sem umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyjabæjar samþykkti að auglýsa. Á auglýsingartímanum komu fram athugasemdir nágranna sem eru ítrekaðar í meðfylgjandi umsögn bréfritara.

Umhverfis- og skipulagsráð tók á þeim tíma tillit til ákveðinna athugasemda bréfritara og hafnaði skipulagsbreytingunni. Þær athugasemdir sem tekið var tillit til var að umfangi hússins væri ofaukið, að samþykki lóðarhafa þar sem byggt er í lóðamörkum lægi ekki fyrir og að huga þyrfti betur að bílastæðum í nærumhverfinu.

Þann 05.06.2023 var tekin fyrir uppfærð tillaga að breyttu deiliskipulagi fyrir Strandveg 51. Frá fyrri tillögu hafði þá verið unnið að breytingum til að koma til móts við ofangreind atriði.

Bílastæði: Samningur hefur verið gerður við fasteignaeigendur við Strandveg 50 um afnot íbúa við Strandveg 51 af bílastæðum á lóð við Strandveg 50 utan dagvinnutíma. Skapast þar með 4 bílastæði fyrir lóðarhafa. Einnig hefur verið gert ráð fyrir sérstæði fyrir Herjólfsgötu 5, við Strandveg 55.

Miðað við núverandi stöðu má ætla að bílastæðum við Herjólfsgötu fækki um sirka tvö stæði. Þess í stað bætast við 4 bílastæði í bílastæðahúsi á lóð við Strandveg 51. Þannig hefur verið gert ráð fyrir 9 nýjum einkastæðum en tvö almenn stæði hverfa. Ekki er langt í fleiri almenn stæði í nágrenni hússins t.d. á gatnamótum Strandvegs og Heiðarvegs og metur

Umhverfis- og skipulagsráð því að brugðist hafi verið við athugasemd um bílastæði með fullnægjandi hætti.

Bréfritari staðhæfir að lög séu um að eitt bílastæði skuli fylgja hverri íbúð á lóð. Ekkert slíkt ákvæði er að finna í lögum. Bæjarsamþykkt um bílastæði og innkeyrslur á lóð tilgreinir viðmið um fjölda bílastæða á lóð fyrir hverja íbúð. Samþykktin eru þó aðeins viðmið og fjöldi fordæma um að ekki sé gert ráð fyrir bílastæði fyrir hverja íbúð, það á sérstaklega við á miðbæjarsvæði þar sem eru fleiri almenn bílastæði.

Umfang hússins: Umfang hússins hefur einnig verið minnkað m.a. hefur hæð hússin verið lækkuð, efri hæðar hafa verið teknar inn í auknu mæli. Hámarksbyggingarmagn var 1.500 m2 skv. fyrri tillögu en er 950,4 m2 skv. núverandi tillögu. Skilgreint hefur verið að lágmarks inndregni byggingarreits fjórðu hæðar skuli vera 1,2 m og skilgreind hefur verið hámarks vegghæð 3 hæðar 9,5 m.

Byggingarreitir í lóðamörkum: Stækkun byggingareits er skv. tillögunni í 3 m fjarlægð frá lóðamörkum við Strandveg 49 og Herjólfsgötu 5. Ráðið taldi þar með að brugðist hafi verið við athugasemdum sem ráðið tók undir með, við fyrri tillögu, með fullnægjandi hætti og samþykkti að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi.

Umsagnaraðil endurtekur fyrri athugasemdir og ítrekar athugasemd varðandi bílastæði sérstaklega. Eins og rökstutt er hér að ofan þykir ráðinu að brugðist hafi verið við þeirri athugasemd með fullnægjandi hætti. Varðandi aðrar athugasemdir er koma fram í bréfi:

Umfang hússins

Umfang hússins hefur verið dregið saman um 550 m2 og því ljóst að umfang hússins er ekki til hins ýtrasta. Í nálægð við Strandveg 51 liggja bæði íbúðarhúsnæði, verslunar og þjónustuhúsnæði. Aukið byggingarmagn er í samræmi við Aðalskipulag Vestmannaeyja 2015-2035 varðandi þéttingu byggðar.

Grunnur hússins

Þegar að húsið verður byggt mun það fylgja byggingarreglugerð og gerð verður krafa um burðarþols reikninga. Reynist grunnur hússins ótryggur eru til aðferðir til að styrkja hann.

Þriðja hæðin

Engar vísbendingar eru um að byggja eigi þriðju hæð hússins á sem ódýrastan hátt eða að
byggingareglugerð sé sniðgengin. Bréfritari færir ekki fullnægjandi rök fyrir þessum athugasemdum.

Samkvæmt núverandi skipulagi er heimild til að hækka hús sem nú er á Strandvegi 51 um 1 hæð og ris. Tækifæri til starfsemi á lóð við Strandveg 49 eru því ekki talin skerðast miðað við gildandi deiliskipulag. Ekki er gert ráð fyrir umferð um lóð við Strandveg 49 og aðgengi hefur verið tryggt að baklóð frá Herjólfsgötu. Allir byggingarreitir sem bætast við eru 3 metra frá lóðamörkum við aðliggjandi lóðir.

Nágrannar og bílastæði

Svæðið sem um ræðir er á miðbæjarsvæði þar sem deiliskipulag gerir ráð fyrir verslun og þjónustu. Þetta kemur skýrt fram í deiliskipulagi svæðisins. Íbúar sem á svæðinu ættu að gera sér grein fyrir verslun og þjónustu sem því fylgir.

Sjá umræðu í upphafi bréfs varðandi bílastæði.

Lóðamörk

Eins og kemur fram að ofan gerir núverandi deiliskipulagstillaga ráð fyrir að allir umfram byggingareitir miðað við núverandi skipulag séu 3 m frá lóðamörkum aðliggjandi lóða. Lóðarhafa verður gert að fjarlægja alla glugga á hliðum útveggja sem liggja að lóðamörkum við Strandveg 49.

Skuggahverfi Vestmannaeyja

Eins og kemur fram að ofan er leyfilegt, skv. gildandi skipulagi að byggja 1 hæð og ris ofan á núverandi byggingu við Strandveg 51. Möguleg ásýnd er sýnd á mynd hér að neðan en engar kvaðir eru um að taka hliðar hússins inn. Miðað við núverandi skipulag myndi því einnig.

Núverandi teikningar gera ráð fyrir að austurhlið hússins sé dreginn inn að hluta, segir í svarbréfi bæjaryfirvalda.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
EF Fors 10 Tbl 2025
10. tbl. 2025

NÝBURAR

Aaro Orrason Vähätalo
30. ágúst 2025
Drengur
Turku Finnland
Laura Vähätalo og Orri Arnórsson

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Dýptarmæling

Ekki liggja fyrir nýjar mælingar 

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.