
Nú eru næstum fjögur ár eru liðin frá því að Eyjalistinn hóf sitt annað samfellda kjörtímabil í meirihluta í bæjarstjórn Vestmannaeyja. Höfundur þessarar greinar situr í fjórða sæti á núverandi lista Eyjalistans. Á kjörtímabilinu hefur greinarhöfundur setið í fjölskyldu- og tómstundaráði sem og verið varabæjarfulltrúi listans. Þau verkefni sem standa upp úr í fjölskyldu- og tómstundaráði á kjörtímabilinu sem er að líða er til dæmis stuðningur bæjarins við Janusar verkefnið um heilsueflingu eldra fólks en það skiptir sveitarfélagið gríðarlega miklu máli að sá hópur fái sem bestu þjónustu. Annað verkefni sem stendur upp úr er stækkun á Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja en þar er mikil þörf á auknu plássi fyrir skólaíþróttir sem og aðrar íþróttir á vegum félaganna. Að lokum vil ég nefna þá vinnu sem er að eiga sér stað í starfshóp sem er að endurmeta starf Heimaeyjar hæfingarstöðvar en þar er þörf á að bæta aðbúnað þjónustuþegna og starfsfólks. Unnið er að því að leggja upp með enn meiri hæfingu í Heimaey og hugsa starfsemina á þann veg fremur en sem starfsvettvang.
Við vitum það öll sem höfum tekið virkan þátt í bæjarpólitík að það er mjög gefandi að taka þátt að gera bæinn sinn enn betri. Þátttaka í bæjarpólitík veitir manni einnig aukinn skilning á mikilvægi þess að innan bæjarstjórnar séu fjölbreyttir einstaklingar, með mismunandi reynslu og sem koma frá ólíkum sviðum samfélagsins.
Fram hefur komið að Eyjalistinn býður fram í komandi sveitarstjórnarkosningum þann 16.maí nk. Meðlimir uppstillingarnefndar eru á fullu að vinna úr þeim ábendingum sem þeim hafa borist en vilja hvetja þau sem eiga eftir að koma til okkar ábendingum um einstaklinga, sem myndu vilja taka þátt með okkur, að gera það. Hér í Vestmannaeyjum erum við heppin að eiga gríðarlega mikla flóru af drífandi og áhugasömum einstaklingum. Í bæjarpólitík skiptir máli að allir íbúar Vestmannaeyjabæjar geti speglað sig í gildum og markmiðum einhvers lista og/eða flokks svo þau upplifi að þau eigi sér málsvara sem talar máli sínu í bæjarstjórn. Markmið Eyjalistans er að eiga enn sterka málsvara fyrir íbúa þess fjölbreytta samfélags sem Vestmannaeyjar eru. Tökum þátt í að gera bæinn okkar enn betri!
Uppstillingarnefnd Eyjalistans tekur við ábendingum um fólk sem hefði áhuga á að taka sæti á lista í vor á netfangið eyjalistinn@gmail.com eða í síma 7724245.
Hildur Rún Róbertsdóttir
Höfundur er varabæjarfulltrúi Eyjalistans.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.