Trausti frá Hafnareyri í Lífeyrissjóðinn
Trausti segir fyrirtækið búa yfir miklum mannauði sem er alls ekki sjálfgefið. Myndin er tekin eftir kaffitíman hjá Hafnareyri á mánudaginn. Á hana vantar fullt af mönnum sem voru annað hvort á vöktum eða við aðra vinnu. Á myndinni: Leifur Jóhannesson, Kristján Flymaster Hauksson, Logi Snædal, Trausti Hjaltason, Birgir Orrason, Skúli Georgsson, Guðbjartur Konráðsson, Óskar Örn Ólafsson, Grettir Guðmundsson, Sindri Viðarsson, Hjálmar Jónsson, Felipe, Bjarki Kristinsson, Birkir Freyr Ólafsson, Willum Andersen, Hafliði Sigurðsson og Valtýr S. Birgisson.

,,Hjá Hafnareyri hef ég fyrst og fremst unnið með skemmtilegu og hæfileikaríku fólki sem er tilbúið að búa til verðmæti á hverjum degi fyrir samfélagið okkar,“ sagði Trausti Hjaltason fráfarandi framkvæmdastjóri Hafnareyrar sem Vinnslustöðin á og rekur.

„Það eru forréttindi að fá að vinna með svona öflugu fólki og síðustu rúmu sjö ár hafa verið skemmtileg og lærdómsrík. Við erum heppin að hafa svona mörg öflug og sterk fyrirtæki í Eyjum. Sem eru tilbúin að stökkva til og vinna saman þegar á þarf að halda. Samstæða Vinnslustöðvarinnar hefur verið að eflast enn frekar undanfarin ár og hef ég tröllatrú á að fyrirtækinu muni áfram vegna vel,” sagði Trausti sem kvaddi Hafnareyri á mánudaginn. Hann hefur verið ráðinn til Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja og byrjar þar næsta mánudag.

 

 

Nýjustu fréttir

ÍBV hefur leik í Bestu deildinni – tekur á móti FH á Hásteinsvelli
Flugvél frá Icelandair flaug óvenju lágt yfir Eyjum
Lækkandi ölduhæð og Álfsnesið á leiðinni
Spurt og svarað: Erlingur frá Eyjalistanum
Sandra náði áfanga með íslenska landsliðinu
Með fullfermi eftir örstutta túra
Friðrik Dór mætir á Þjóðhátíð
Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.