Tvöföld ÍBV-veisla í dag
Það verður tvöföld ÍBV-veisla í dag þegar kvennalið félagsins í handbolta og knattspyrnu leika heimaleiki með skömmu millibili. Ljjósmyndir: samsettar/Sigfús Gunnar

Það verður sannkölluð íþróttaveisla í Vestmannaeyjum í dag þegar kvennalið ÍBV í handbolta og knattspyrnu leika heimaleiki með skömmu millibili.

Fyrri leikur dagsins hefst klukkan 13.00 í Íþróttamiðstöðinni þegar ÍBV tekur á móti KA/Þór í fyrstu umferð Olísdeildar kvenna í handbolta. Miklar væntingar eru gerðar til Eyjaliðsins í vetur, en þjálfarar og fyrirliðar liðanna spáðu ÍBV deildarmeistaratitlinum í árlegri spá sinni fyrir tímabilið.

Að handboltaleiknum loknum færist fjörið yfir á Hásteinsvöll. Þar taka knattspyrnukonur ÍBV á móti Fram klukkan 15.30 í lokaumferð fyrri hluta Bestu deildarinnar.

ÍBV er í þriðja sæti deildarinnar með 27 stig og hefur þegar tryggt sér sæti í efri hlutanum. Fram er í áttunda sæti með 19 stig. Eyjakonur koma inn í leikinn eftir góðan 2:1-útisigur á toppliði Breiðabliks í síðustu umferð, en Fram vann Stjörnuna 3:2.

Það er því tilvalið fyrir stuðningsmenn ÍBV að hefja daginn í Íþróttamiðstöðinni og halda þaðan beint á Hásteinsvöll.

  • Klukkan 13.00: ÍBV – KA/Þór í Olísdeild kvenna í handbolta.
  • Klukkan 15.30: ÍBV – Fram í Bestu deild kvenna í knattspyrnu.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.