Ufsaberg kaupir togskip í Ástralíu

Skipið er 37 metra langt og 10,4 metra breytt. �?að er smíðað í Noregi árið 2000 og var gert þar út fyrstu 3-4 árin en var svo selt til Ástralíu þar sem það var meðal annars á búraveiðum. Í skipinu er rúm fyrir um 300 kör af minni gerðinni. Viðskiptahúsið hafði milligöngu um skipakaupin.

Eyjólfur Guðjónsson skipstjóri og útgerðarmaður sagði í samtali við Fiskifréttir að til þess að skipið gæti komist í þann flokk skipa sem er heimilað að veiða upp að fjórum mílum frá landi þurfi að draga ú afli þess. �?að verður gert með því að fjarlægja skrúfuhring skipsins og öðrum smávægilegum aðgerðum.

Um ástæðu þess að útgerðin ákvað að selja uppsjávarskipið og snúa sér frekar að botnfiskveiðum sagði Eyjólfur, að þegar uppsjávarskipin komust smám saman í eigu fiskimjölsverksmiðjanna hefði rekstrarumhverfið ekki verið hagstætt einyrkjum í þessum flokki skipa.

Eyjólfur kveðst vonast til þess að skipið komi til landsins í kringum mánaðarmótin mars/apríl á næsta ári. �?egar Gullbergið var selt Vinnslustöðinni ásamt uppsjávarkvóta var söluverðið að hluta greitt í botnfiskaflaheimildum. Hefur Ufsaberg nú yfir að ráða nálægt 1500 þorskígildum og sagði Eyjólfur að reynt yrði að auka kvótann eftir föngum. Afla nýja skipsins verður svo ráðstafað þar sem verðið er hagstæðast hverju sinni.

www.skip.is

Nýjustu fréttir

Erlingur til GWD Minden – Bergvin tekur við sem aðalþjálfari ÍBV
Heimir fagnaði 3-0 sigri gegn Ísrael
Það sem vikan skilur eftir sig
Guðrún telur að stutt geti verið í kosningar
Lundaballið haldið í Höllinni – myndir
Gjaldskrá Frístundar til endurskoðunar
Vilja setja aldursmörk á samfélagsmiðla – ábyrgðin yrði hjá foreldrum
ÍBV tapaði gegn Breiðablik á Hásteinsvelli
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.