Um 300 grindhvalir drepnir í Eyjum
Mynd: Sigurgeir Jónsson

í dag klukkan 13.00 verður í Sagnheimum fyrirlestur Baldvins Harðarsonar þar sem hann lýsir grindhvaladrápi í Vestmannaeyjum og venjum og hefðum í kringum þær. Af því tilefni er full ástæða til að rifja upp þegar grindhvalavala var rekin inn í höfnina í Vestmannaeyjum 1958 með myndum sem Sigurgeir Jónasson tók.

„Sá óvenjulegi at burður gerðist í Vestmannaeyjum í gærkvöldi, að þar var rekin á land stór marsvínatorfa,“ segir í frétt í Tímanum 6. ágúst 1958.

„Hljóp hún á land í svonefndum Botni alveg inn við Friðarhöfn, og voru hvalirnir lagðir þar að velli. — Hvaladrápið stóð sem hæst um klukkan ellefu í gærkveldi, er blaðið hafði tal af fréttaritara sínum í Eyjum. Þá var búið að skera um 80 hvali, en margt hvala var dautt við fjöruborðið eða svamlaði framan við.

Það var Sigfús Guðmundsson, skipstjóri á vélbátnum Sævari, er tilkynnti í talstöð, að hann hefði fundið grindavöðu austur í Fjallasjó og væri búinn að reka hana í klukkustund. Var klukkan þá tíu mínútur yfir tvö. Brugðu bátar við og fóru til liðs, og urðu átta vélbátar saman við reksturinn.“

Umræddur fréttaritari var sennilega Sigurgeir Kristjánsson, bæjarfulltrúi og framsóknarmaður með meiru. Daginn eftir segir Sigurgeir: „Hér hefir stanzlaust verið unnið að hvalskurði síðasta sólarhringinn, og um klukkan 7 í kvöld var búið að lóga 170 hvölum og þá aðeins eftir að skera 15 þeirra. Þá voru eftir lifandi í höfninni hátt á annað hundrað hvala að því er talið er, og var ráðgert að lóga á flóðinu í kvöld eins mörgum og unnt mundi að skera til hádegis á morgun, en þá verður hvalskurði hætt að sinni, enda fer þá þjóðhátíð í hönd.

Með fréttinni eru myndir sem Sigurgeir Jónasson frá Skuld tók. Þar með hóf hann feril sinn sem ljósmyndari á landsmálablöðum og er hann enn að, rúmum 60 árum og á fjórðu milljónum mynda síðar.

Ári seinna er hann ráðinn ljósmyndari hjá Morgunblaðinu og er enn tilbúinn þegar kallið kemur.

Nýjustu fréttir

Lagt til að ráðist verði í könnunarveiðar á humri
Vel heppnaðri loðnuvertíð lokið
Jón Þór leiðir lista Miðflokksins – Sæunn er bæjarstjóraefnið
Fyrri ferð föstudags felld niður
Elliði Snær markahæstur gegn Svíum
Laxey á Seafood Expo North America
Trúin og andlegt starf styrkur í sorginni
Heimir heldur áfram með Írland – samningur til 2028

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.