Umhverfis- og samgöngunefnd fundar sérstaklega um stöðu innanlandsflugs
29. ágúst, 2019
Vilhjálmur Árnason, alþingismaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Suðurkjördæmi.

Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis kemur saman í fyrramálið, klukkan 8:30, til þess að ræða stöðu innanlandsflugs á Íslandi en Vilhjálmur Árnason, nefndarmaður Sjálfstæðisflokksins í umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, óskaði á dögunum eftir því að fundurinn yrði haldinn.
Gestakomur verða frá fulltrúum flugrekstraraðila og ISAVIA en Vilhjálmur óskaði eftir fundinum í kjölfar þess að flugrekstraraðilar drógu saman seglin í áætlunarflugi innanlands og lýstu yfir erfiðleikum í rekstri.
Vilhjálmur segir brýnt að samgönguáætlun komi til framkvæmda sem fyrst, en þar munar helst um skosku leiðina í innanlandsflugi.

Vilhjálmur sagði í samtali við Eyjafréttir brýnt að samgönguáætlun komi til framkvæmda sem fyrst, en þar munar helst um skosku leiðina í innanlandsflugi.
“Ég vonast til að varpa betra ljósi á stöðu innanlandsflugsins og hvort það séu færar leiðir til að bregðast fljótt og ákveðið við stöðunni og tryggja flugið í sessi og efla það enn frekar. Það mun skipta miklu upp á að hafa öflugar samgöngur til Vestmannaeyja að hafa fleiri en einn valmöguleika á að ferðast til og frá Eyjum með góðri tíðni ferða. Þetta skiptir Vestmannaeyjar miklu máli samgöngulega séð að það takist að efla innanlandsflugið.”

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst