Á fundi bæjarráðs 30. júlí sl. lá fyrir samantekt innviðauppbyggingarnefndar um stöðu innviða m.t.t. ferðaþjónustu og tillögur að úrbótum. Bæjarráð tók á síðasta ári ákvörðun um að skipa sérstakan starfshóp sem hefði það hlutverk að skoða innviði með tilliti til ferðaþjónustu í Vestmannaeyjum. Ætti þetta sérstaklega við um aðkomu og göngustíga að helstu ferðamannastöðum í Vestmannaeyjum. Ákveðið var að hópurinn myndi skila samantekt til bæjarráðs um stöðuna og tillögur að úrbótum.
Bæjarráð skipaði í hópinn framkvæmdastjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs, framkvæmdastjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs, umhverfisfulltrúa og þá Pál Scheving og Hallgrím Rögnvaldsson f.h. Ferðamálasamtaka Vestmannaeyja. Starfshópurinn hittist fimm sinnum á tímabilinu þar sem farið var yfir stöðuna á helstu gönguleiðum og leiðir til úrbóta ræddar. Í kjölfarið var eftirfarandi samantekt gerð:




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.