Úthlutun byggðakvóta 2021/2022

Á fiskveiðiárinu 2021/2022 er almennum byggðakvóta úthlutað til 50 byggðarlaga í 29 sveitarfélögum. Þrjú byggðarlög fá 300 þorskígildistonna hámarksúthlutun á fiskveiðiárinu 2021/2022 og sextán byggðarlög fá 15 þorskígildistonna lágmarksúthlutun.

Úthlutunin byggir á þeim reglum sem fram koma í 4. gr. reglugerðar nr. 919/2021, um úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga á fiskveiðiárinu 2021/2022, og upplýsingum frá Fiskistofu um samdrátt í botnfiskafla, botnfiskaflamarki og vinnslu botnfisks annars vegar og samdrætti í rækju- og skelvinnslu hins vegar frá fiskveiðiárinu 2011/2012 til fiskveiðiársins 2021/2022.

Á heildina litið verða óverulegar breytingar á því magni í þorskígildistonnum sem einstök byggðarlög fá úthlutað. Þó eru það alls 8 byggðarlög þar sem úthlutun dregst saman milli ára sem skýrist einkum af samdrætti í heildarúthlutun milli ára. Samdráttur í heildarúthlutun frá fiskveiðiárinu 2020/2021 nemur 179 þorskígildislestum.

Byggðarlög með færri en 400 íbúa fá 3.219 þorskígildistonnum úthlutað og byggðarlög með fleiri en 400 íbúa fá 1.404 þorskígildistonnum úthlutað.

Eftir landshlutum þá skiptist úthlutun fiskveiðiársins 2021/2022 svona:

Austurland 779 t
Norðurland eystra 1.031 t
Norðurland vestra 394 t
Suðurland 170 t
Suðurnes 155 t
Vestfirðir 1.812 t
Vesturland 282 t

Sundurliðun á úthlutun byggðakvóta til einstakra byggðarlaga 2021/2022.

Nýjustu fréttir

ÍBV með mikilvægan sigur gegn Fram
Hlynur bætti Íslandsmetið í hálfmaraþoni
Líflegt spjall á N1 við Friðarhöfn
Tjaldsvæði opnað inni í Herjólfshöll á Þjóðhátíð
Örlygur Helgi ,,fyrst og fremst heiður”
Mannabreytingar í nefndum bæjarins eftir flokkaskipti
Eyjamenn sækja Fram heim
Á rauðu ljósi í Reykjavík
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.