Vel veiðist hjá Eyjunum
Eyjarnar landa
Systurskipin í heimahöfn. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Það sem af er þessum mánuði hefur veiði verið góð hjá Vestmannaeyjatogurunum Vesatmannaey og Bergey. Veiðiferðirnar hafa verið stuttar eða tveir til þrír sólarhringar og hefur yfirleitt verið komið með fullfermi að landi. Oftast hefur verið landað í Grindavík en einnig í Þorlákshöfn og í Eyjum, að því er segir í frétt á vef Síldarvinnslunnar.

Bæði skipin lönduðu fullfermi í gær, Vestmannaey í Grindavík og Bergey í Eyjum. Hljóðið í skipstjórunum var gott. Egill Guðni Guðnason, skipstjóri á Vestmannaey, var ánægður með aflabrögðin upp á síðkastið. “Það hefur gengið vel að veiða að undanförnu. Túrarnir hafa verið stuttir en þessi túr var þó þrír og hálfur sólarhringur, enda veðrið ekki sérstaklega skemmtilegt. Það voru 20 – 25 metrar í eina tvo sólarhringa og töluverð leiðindi. Nú er einnig farið að líða á kvótaárið og þá er ekki unnt að veiða hvaða tegund sem er. Að þessu sinni hófum við veiðar í Háfadýpi, síðan var haldið á Broadway og þaðan í Grjótið vestan við Garðskaga. Túrinn var síðan kláraður við Eldeyna,” sagði Egill Guðni.

Ragnar Waage Pálmason, skipstjóri á Bergey, var einnig ánægður með aflabrögðin að undanförnu. “Það hefur gengið vel að fiska allan þennan mánuð. Veiðiferðirnar hafa verið stutter og við höfum landað í Grindavík þar til nú að landað er í heimahöfn. Það var heldur leiðinlegt veður í þessum túr enda tók hann um þrjá og hálfan sólarhring. Aflinn núna var mest langa og síðan var þetta bland af ýmsu. Við hófum veiðar á Pétursey í kaldafýlu. Þaðan var haldið á Ingólfshöfða þar sem var nudd. Síðan var tekið eitt hol í Reynisdýpinu og loks klárað á Vík og Pétursey. Það er verið að eltast við ákveðnar tegundir eins og ávallt þarf að gera í lok kvótaárs,” sagði Ragnar Waage.

Nýjustu fréttir

Dýpkunin í Landeyjahöfn sögð ganga vonum framar
ÍBV fallið úr Bestu deild karla eftir tap gegn Þór á Akureyri
ÍBV fyrst til að leggja ÍR að velli á tímabilinu
Eyjar liðins tíma lifna við – 1. þáttur
Tveir fyrir einn… og ævilöng áhrif
Íbúar hvattir til að móta framtíð atvinnulífs í Eyjum
„Mikilvægt að við fáum að láta rödd okkar heyrast“
Eyjamenn geta lyft sér af botninum með sigri á Þór
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.