Verkfall hefði mikil áhrif á starfsemi sveitarfélagsins

Í morgun sögðum við frá áhrifum hugsanlegra verkfallsaðgerða BSRB (Stavey), á starfsemi Grunnskóla Vestmannaeyja. Það er þó ekki eina starfsemin sem skerðist í Eyjum.

„Komi til verkfalla mun það hafa mis mikil áhrif á starfsemi sveitarfélagsins allt frá því að starfsemin lokist alveg til lítillar eða engrar skerðingar,“ segir í tilkynningu frá Vestmannaeyjabæ. „Forstöðumenn þeirra stofnanna þar sem þjónustan skerðist munu senda út tilkynningar með upplýsingum um þær skerðingar sem verða hjá þeim ef til verkfalls kemur.“

Starfsemi sem mun alveg leggjast niður í verkfalli:

  • Frístundaverið
  • Félagsmiðstöðin
  • Frístundaverið í Hamarsskóla
  • Afgreiðsla bæjarskrifstofa
  • Afgreiðsla tæknideildar
  • Afgreiðsla skólaskrifstofu og félagsþjónustu
  • Starfsemi Safnahúss
  • Starfsemi Eldheima

Starfsemi sem mun skerðast:

  • Starfsemi leikskólans Kirkjugerðis
  • Starfsemi Víkurinnar
  • Starfsemi Íþróttamiðstöðvar (sundlaugin lokuð og skólaleikfimi kennt í Gunnskólanum )
  • Heimaþjónusta
  • Þrif, stuðningur, mötuneyti, skrifstofustarf og húsvarsla í GRV og tónlistarskólanum
  • Hafnarvogin
  • Hafnarvarsla

Þeir sem eru í undanþágu:

  • Bæjarstjóri
  • Framkvæmdastjórar sviða, (3)
  • Fjármálastjóri
  • Kerfisstjóri
  • Launafulltrúi
  • Forstöðumaður íþróttamiðstöðvar
  • Hafnarstarfsmenn (2)
  • Slökkvistjóri
  • Rekstur mannvirkja (2)
  • Ófaglærðir í umönnun Hraunbúðum (8)
  • Starfsmenn í mötuneyti Hraunbúða (2)
  • Stuðningsfulltrúar á Sambýlinu (3)

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.