Vestmannaeyingar móta framtíð sveitarfélagsins

Dagana 9. til 23. september nk. ætlar Vestmannaeyjabær að framkvæma skoðanakönnun meðal allra íbúa sveitarfélagsins sem eru fæddir árið 2007 eða fyrr. Upplýsingar sem safnast í þessari könnun verða notaðar við mótun atvinnustefnu sveitarfélagsins.
Bæjarstjórn og aðrir aðstandendur könnunarinnar hvetja alla til að taka þátt og deila skoðunum sínum og hugmyndum um þróun atvinnulífsins í Vestmannaeyjum. Mikilvægt er að sem flestir bæjarbúar taki þátt í að móta þróun atvinnulífs í Eyjum, sem er meginforsenda hagsældar og atvinnuþátttöku. Þátttakendur geta svarað könnuninni á íslensku, pólsku eða ensku.

Hér getur þú nálgast könnunina sem tekur um 15-25 mín. að ljúka

Verkefni þetta er einstakt á landsvísu en Vestmannaeyjar eru fyrsta sveitarfélag landsins þar sem öllum íbúum, sem í ár eru 14 ára eða eldri, gefst tækifæri til að koma að mótun framtíðar í efnahagsmálum sveitarfélagsins.

Nýjustu fréttir

Atli Steinn fór á kostum þegar ÍBV lagði Stjörnuna að velli
Sebastiano Caboto við dýpkun í Vestmannaeyjahöfn
Norðurljósin settu svip á hrekkjavökuna í Eyjum
Engin fyrirheit um fjármögnun nýs dráttarbáts
Eyjamenn vilja fylgja eftir góðum útisigri
Grikk eða gott í Eyjum – myndir
Erlingur og lærisveinar áfram á sigurbraut í Þýskalandi
Konunglegt drama í Sagnheimum – hver er dularfulli Íslendingurinn?
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.