Vetraraðstaða knattspyrnunnar – gervigras á Hásteinsvöll
eftir Inga Sigurðsson
7. nóvember, 2024
Hásteinsvöllur Mynd Nr. 1
Hásteinsvöllur. Ljósmyndir/aðsendar.

Bæjaryfirvöld í Vestmannaeyjum tóku þá ákvörðun í lok árs 2023 að gervigras yrði sett á Hásteinsvöll. Þó svo ekki sé fullur einhugur um þá ákvörðun innan ÍBV íþróttafélags þá þarf að vinna með þá niðurstöðu svo hún skili sem mestum ávinningi fyrir iðkendur knattspyrnu hér í Eyjum.  Þær skoðanir sem voru uppi áttu það sameiginlegt að gervigras væri lausnin, en sumir töldu gervigras á Hásteinsvöll vera lausnina á meðan aðrir töldu lausnina vera gervigras í fullri stærð með stækkun núverandi knatthús.

Undirbúningur verksins

Nú hefur Vestmannaeyjabær auglýst verkið með útboði þar sem hefja á framkvæmdir í lok þessa árs og að fullgerður völlur verði tekinn í notkun í byrjun maí 2025. Það er verðugt markmið en er það raunhæft? Er einnig verið að bjóða út nýtt gervigras með öllum þeim búnaði sem er nauðsynlegur og skv. þeim kröfum sem gilda um knattspyrnuvelli skv. reglugerðum og leyfiskerfi KSÍ? Skoðum þessa þætti betur og hvernig þessi framkvæmd hefur áhrif á komandi knattspyrnutímabil kvenna- og karlaliðs ÍBV.

Fyrst varðandi tímasetningu framkvæmda og þá tímaáætlun sem útboðið miðast við er vert að skoða reynsluna hérlendis á undanförnum árum varðandi þá velli sem hafa verið lagðir nýju gervigras, hvort sem er um endurbætur eða nýframkvæmd að ræða.

Yfir heildina má segja að engri framkvæmd hafi nást að ljúka á þeim tímamörkum sem settar voru og fyrir því eru aðallega tvær ástæður. Annars vegar er það tíðarfarið hér á landi á þeim tíma sem miðað er við að leggja niður gervigrasið. Yfirleitt er miðað við apríl eða maí og þá er staðreyndin sú að ekki hefur nást að klára þessa velli á þeim tíma. Sem dæmi þá léku KA menn á Dalvíkurvelli fram á mitt sumar 2022 áður en þeir gátu tekið sinn gervigrasvöll í notkun. Það sama má segja um Vestramenn á Ísafirði á þessu ári, Tindastólskonur á Sauðárkróki, Lambhagavöllur í Úlfarsárdal og fleiri dæmi eru til.  Þessir vellir eiga einnig það sammerkt að gervigras á þessa velli er að mestu leyti frá sama aðila sem þýðir það að erfitt getur verið fyrir þann aðila út frá tíðarfari að hafa alla vellina tilbúna á sama tíma.

Núna eru nokkrir nýir vellir í bígerð t.d. í Hveragerði, á Hvolsvelli, í Mosfellsbæ og mögulega í Frostaskjóli og því er möguleg sú staða að þeir vellir verði allir unnir á sama tímabili og af sama aðila . Því eru möguleikar á því að framkvæmdin hér í Eyjum dragist fram á mitt sumar 2025 sem þýðir að kvenna- og karlalið félagsins gætu þurft að leik heimaleiki sína á öðrum velli sbr. Vestramenn í sumar.  Mögulega er hægt að ræða e-h lausnir við KSÍ en skv. þeim upplýsingum sem ég hef þá hafa engin formleg samskipti verið frá stjórnendum ÍBV íþróttafélags við þá sem sjá um mótamálin hjá KSÍ til að upplýsa um þessa framkvæmd.

Á komandi tímabili leikur karlalið félagsins á ný í Bestu deildinni og kvennaliðið er að setja markmiðið að komast upp í Bestu deildina. Mikilvægi þess að bæði lið geti leikið sína heimaleiki frá byrjun tímabils á Hásteinsvelli er því verulegt.  Byrjun tímabilsins segir mikið til um það hvar liðin verða að berjast í sínum deildum.  Um miðjan september er deildarkeppni kvennaliðsins langt komin og umspilskeppni karlaliðsins að hefjast. Það er því vert að skoða af fullri alvöru að hefja framkvæmdir við völlinn t.d. eftir miðjan september 2025. Þá ætti jarðvinna og lagning gervigrass ekki að taka lengri tíma en 2 mánuði svo nýtt gervigras væri tilbúið um miðjan nóvember 2025.  Vert er einnig að kynna sér hvort hitastig seinni hluta september og út október sé hærra en í apríl, því hitastigið er það sem skiptir máli þegar kemur að því að leggja niður gervigrasið. Aðalmálið er að gervigras á Hásteinsvöll nýtist fyrir vetrartímabilið 2025/2026 þó svo að tímaáætlunin myndi færast fram á haustið.

Útboð verksins – kröfur til nýs leikvangs skv. reglugerð KSÍ

Næst er þá að velta fyrir sér þeim kröfum sem gilda um knattspyrnuvelli sem eru samþykktir skv. reglugerð KSÍ um knattspyrnuleikvanga. Hásteinsvöllur er völlur sem er í B-flokki en það er sú krafa sem gildir um velli sem leikið er á í efstu deild karla. Í umræddri reglugerð er fyrirskrifað hvaða útbúnaður völlur skal vera útbúinn sbr. grein 8.6 og grein 8.7:

IS Mynd2

Í greininni er sagt að leikvöllur skal útbúinn nauðsynlegum búnaði s.s. jarðvegshitun undir velli. Ástæðan fyrir að ég tek þann útbúnað fyrir er sú staðreynd að í útboði Vestmannaeyjabæjar er ekki lagt upp með að lagðar verði hitalagnir undir völlinn eins og er undantekningarlaust gert með alla keppnisvelli sem lagðir eru gervigrasi. Það er grunnforsendan til að Hásteinsvöllur nýtist sem bætt vetraraðstaða fyrir knattspyrnuna hér í Eyjum. Hitalagnir undir vellinum eru fyrst og fremst til að uppfylla eftirfarandi tvö atriði:

  • Að hámarka notkun vallarins fyrir alla flokka knattspyrnunnar frá hausti og fram að vori. Ef það er ekki hitalögn undir vellinum þá verður frostlag yfir vellinum yfir erfiðasta tíma ársins veðurfarslega, og þar með ekki hægt að æfa eins mikið á vellinum og mögulegt er.
  • Að hámarka endingartíma gervigrasins sem er vanalegast um 5 ár en myndi að öllum líkindum styttast vegna meira slits á gervigrasinu. Ástæðan fyrir meira sliti er að án hitalagnar þá frýs efsta lag gervigrasmottunar sem kallar á meira slit þegar er farið að sparka á vellinum þegar frostlagið er enn til staðar. Þetta gæti þýtt að ef endurnýjun gervigrasmottunar yrði t.d á 4 ára fresti, leiðir það af sér að endurnýjunarkostnaðar gervigrasins á 10 ára fresti væri 2,5 sinnum í stað 2 sinnum. Ef hver endurnýjun kostar ca. 100 m.kr. þá er það 50 m.kr. meiri endurnýjunarkostnaður fyrir vikið á meðan hitalögn undir völlinn þ.e. efni og niðurlögn ásamt búnaði er mögulega um 30 m.kr.

Umrætt gervigras mun væntanlega vera lagt skv. þeirri grunnforsendu að bæta vetraraðstöðu knattspyrnunnar og þá þarf að vera til staðar flóðlýsing leikvallar. Það er einnig staðreynd að nú þegar tekjur knattspyrnufélaga frá sjónvarpsréttindum fara hækkandi, eru kröfur til gæða lýsingar á leikvöllum meiri en verið hefur.  Í grein 41 – Flóðlýsing í sömu reglugerð er skýrt frekar hvaða kröfur eiga við eftir því í hvaða flokki umræddur leikvangur er.  Þar sem krafa er um að allir leikvangar í efstu deild séu í flokki B þá gildir umrædd krafa um leikvanga í þeim flokki í grein 41.3:

IS Mynd3

Í greininni er ekki gerð krafa um að leikvellir séu búnir flóðlýsingu en þar sem gervigras á Hásteinsvelli er aðallega til að bæta vetraraðstöðu knattspyrnunnar segir sig sjálft að flóðlýsing þarf að vera til staðar.  Hin staðreyndin er að keppnistímabil í efstu deildum karla og kvenna er að lengjast í báða enda og þá er verið að leika leiki á þeim tímum ársins að lýsingar er þörf. Til að knattspyrnan hjá ÍBV eigi möguleika á þeim tekjum sem sjónvarpsréttindin skila þá verður flóðlýsingin að uppfylla ákvæðið hér að ofan 800 Lux. Hins vegar er það svo skv. nýjustu upplýsingum frá Vestmannaeyjabæ að völlurinn verður útbúinn 500 Lux.  Það hlýtur að vera misskilningur af hendi bæjaryfirvalda því umrætt ákvæði reglugerðarinnar er skýrt.  Því er mikilvægt að forsvarsmenn sveitarfélagsins hafi samband við KSÍ til að fá þetta staðfest.

Það sem þarf að huga frekar að

Út frá því sem ég hef sett fram þá er mikilvægt að bæjaryfirvöld og ÍBV íþróttafélag hugi frekar að eftirfarandi atriðum áður en gengið verður til samninga um verkið:

  • Hafa þarf samband við KSÍ og fá formlega yfirferð á þeim forsendum sem liggja til grundvallar framkvæmdinni.
  • ÍBV íþróttafélag þarf að hafa samband við KSÍ og fá álit sambandsins varðandi komandi keppnistímabil upp á heimaleiki ÍBV sem eiga það á hættu að falla niður.
  • Hitalögn undir völlinn er bráðnauðsynleg til að notkun vallarins sem vetraraðstaða verði í samræmi við það sem lagt er upp með fyrir unga sem eldri iðkendur.
  • Flóðlýsing vallarins þarf að vera skv. kröfum reglugerðar KSÍ um leikvanga í B-flokki, 800 Lux.
  • Kynningu á verkefninu fyrir knattspyrnuiðkendum og þeim sem sinna störfum fyrir knattspyrnuna.

Það er mikilvægt í þessu eins og öðru að gegnsæi sé til staðar svo bæjarbúar og félagsmenn geti fengið kynningu á þessu verkefni sem og öðrum verkefnum á vegum sveitarfélagsins.

Undirritaður er tilbúinn hér eftir sem áður til að veita þessu verkefni lið í þeirri viðleitni að verkefnið muni gagnast knattspyrnunni í Eyjum sem allra best.

 

Með von um jákvæðar undirtektir í mikilvægu verkefni.

Ingi Sigurðsson, bæjarbúi og knattspyrnuáhugamaður

Hásteinsvöllur Mynd Nr. 2

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
EF Fors 10 Tbl 2025
10. tbl. 2025

NÝBURAR

Aaro Orrason Vähätalo
30. ágúst 2025
Drengur
Turku Finnland
Laura Vähätalo og Orri Arnórsson

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Dýptarmæling

Ekki liggja fyrir nýjar mælingar 

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.