Vilja reka Herjólf áfram
Herjolfur Farth TMS 20240807 182014
Myndin er tekin um borð í Herjólfi. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Bæjarráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að óska eftir framlengingu á samningi sveitarfélagsins og ríkisins um rekstur Herjólfs. Núgildandi samningur rennur út 31. desember 2026, en heimilt er að framlengja hann um tvö ár, til ársloka 2028.

Sveitarfélagið þarf að senda tilkynningu til ríkisins í janúar 2026, óski það eftir að nýta sér framlengingarákvæði samningsins. Bæjarráð samþykkti samhljóða að fela bæjarstjóra að senda slíka beiðni fyrir hönd sveitarfélagsins og vísaði málinu áfram til staðfestingar í bæjarstjórn, þar sem það var samþykkt með níu samhljóða atkvæðum.

Vestmannaeyjaferjan Herjólfur ohf., sem er að fullu í eigu Vestmannaeyjabæjar tók við rekstri ferjunnar í apríl 2019, en núverandi ferja var tekin til notkunar sumarið sama ár.

Nýjustu fréttir

Herjólfur fækkar ferðum í dag
Erlingur með tvo sigra í fyrstu tveimur leikjunum með Minden
Gul viðvörun á Suðurlandi í kvöld
Bæjarráð krefst sjálfstæðs lögregluembættis í Eyjum
Dýpkunin í Landeyjahöfn sögð ganga vonum framar
ÍBV fallið úr Bestu deild karla eftir tap gegn Þór á Akureyri
ÍBV fyrst til að leggja ÍR að velli á tímabilinu
Eyjar liðins tíma lifna við – 1. þáttur
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.