Viljayfirlýsing undirrituð um samstarf vegna Eyjaganga
Eyjagöng fjármagna fýsileikarannsóknir – ríkið styður verkefnið með gögnum, greiningum og ráðgjöf
Haraldur Pálsson framkvæmdastjóri Eyjaganga, Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra og Árni Sigfússon stjórnarformaður Eyjaganga. Ljósmynd/Stjórnarráðið.

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra og forsvarsmenn Eyjaganga undirrituðu í gær viljayfirlýsingu um samstarf við könnun á fýsileika jarðganga milli lands og Vestmannaeyja. Markmiðið er að skapa grundvöll fyrir áframhaldandi rannsóknir og greiningar vegna verkefnisins.

Samkvæmt viljayfirlýsingunni mun Eyjagöng ehf. bera ábyrgð á og fjármagna heildstæðar fýsileikarannsóknir. Þær munu meðal annars taka til jarðfræðilegra og tæknilegra forsendna, umhverfisþátta, umferðarspár og fjárhagslegrar uppbyggingar verkefnisins.

Ríkið mun styðja við undirbúninginn með miðlun gagna og greininga, ráðgjöf um leyfismál og samstarfi um tengingu mögulegra jarðganga við vegakerfi landsins.

Mikilvægt að ríkið greiði götu verkefnisins

„Það er ánægjulegt að heimamenn í Eyjum hafi tekið frumkvæði að því að fjármagna og leiða svo umfangsmiklar rannsóknir. Það er mikilvægt að ríkið greiði götu verkefnisins á þessu stigi og það gerum við með faglegu samstarfi, miðlun gagna og ráðgjöf,“ segir Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra.

Eyjagöng ehf. voru stofnuð til að kanna fýsileika jarðganga milli lands og Vestmannaeyja. Verkefnið tekur til hönnunar, fjármögnunar, byggingar og reksturs mögulegra ganga. Að félaginu standa sveitarfélög, fyrirtæki og aðrir fjárfestar.

Félagið hefur þegar hafið þrepaskiptar jarðrannsóknir sem eiga að verða grundvöllur upplýstrar ákvörðunar um hvort og með hvaða hætti ráðist verði í framkvæmdina. Gert er ráð fyrir að rannsóknirnar standi yfir næstu tvö ár, segir í tilkynningu innviðaráðuneytisins.

Greindi frá þessu skrefi í viðtali við Eyjafréttir

Árni Sigfússon, stjórnarformaður Eyjaganga, er í ítarlegu viðtali í nýjasta vefblaði Eyjafrétta sem kom út í gær. Þar fjallar hann um stöðu verkefnisins, rannsóknirnar sem þegar hafa farið fram og næstu skref. Meðal þess sem hann greindi frá var fyrirhuguð viljayfirlýsing og samstarf Eyjaganga við ríkið um áframhaldandi undirbúning verkefnisins. Hér geta áskrifendur lesið blaðið.

Nýjustu fréttir

Landsnet telur afhendingaröryggi í Eyjum mjög gott
Tómstundahlaðborð um helgina
Lítil skref geta haft stór áhrif á heilsuna
Strákarnir mæta ÍR í 16-liða úrslitum Powerade bikarsins – Stelpurnar mæta Stjörnunni
Eyjarnar landa í Neskaupstað í dag
Krónan frystir verð á 647 vörum út árið
Fjölbreytt listsköpun í Gallerý Skúrnum  
Vindhviður í 46 metra á sekúndu á Stórhöfða
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.