Allir vita að góður vinur er gulls ígildi og getur gert kraftaverk þegar á reynir. Vináttan er gríðarlega mikilvæg og margir eignast sínu bestu vini í grunnskóla. Þó ekki allir. Góður vinur getur haft jákvæð áhrif á vellíðan nemenda og því er félagsfærni mjög mikilvægur þáttur í lífi barna. Oft á tíðum er þetta mjög vanmetinn þáttur í skólagöngu og lífi barna almennt.
í Grunnskóla Vestmannaeyja eru alltaf gerðar tenglsakannanir hjá nemendum til að fylgjast með þróun vinatengsla. Með það fyrir augum að styrkja þá sem á því þurfa. Það er nefnilega í skólanum sem grunnur að vináttu margra er byggður. Það er enn margt til í því sem Nóbels verðlaunahafinn Johannes Fibiger skrifaði eitt sinn: Æskuárin eru tími vináttunnar. Það sem eftir er ævinnar verða menn að láta sér nægja þann vinahóp sem þeim tókst að eignast á þeim gömlu góðu dögum.
Fyrir ári síðan tókum við eftir breytingum á tengslakönnun hjá nemendum í 2. bekk. Það vakti furðan okkar hve margir nemendur væru að tengjast við aðra nemendur úr öðrum bekkjum. Sem er gott og blessað og gerist einstaka sinnum. Eftir tengslakönnun í ár hjá öðrum bekk gerist það aftur. Áberandi hve margir nemendur eru að tengjast vinaböndum úr öðrum bekkjum. Við kíktum til baka síðustu 6 ár og sáum að meðaltali væru 6 nemendur að fá tengsl við nemendur úr öðrum bekkjum. En af tveimur síðustu árgöngum hafa verið 19 slíkar tengingar. Stóra spurningin er því, hvað breyttist?
Þessir 2 síðustu árgangar eru nefnilega “kveikjum neistann” árgangar. Haustið 2021 hófst þróunarverkefnið “Kveikjum neistann” og þar er mögulega að finna svar við þessum óvæntu og jákvæðu vinaböndum milli bekkja.
Þetta er mögulega hægt að útskýra að miklu leyti vegna ástríðu- og þjálfunar tímanna.
Í þjálfunar tímunum er nemendum raðað í hópa sem eru komnir svipað langt í náminu, gert til að allir fái verkefni við hæfi. Þetta er ein af lykilkenningum verkefnisins. Börn verða að fá réttar áskoranir miðað við færni til að komast í flæði en þannig ná þeir frábærum árangri (Csikszentmihalyi). Þjálfunar tímarnir eru þvert á bekki. Í ástríðu tímunum fá nemendur að velja sér viðfangsefni eftir ástríðu, einnig þvert á bekki. Í þessum tímum eru því meiri líkur að þú finnir einhvern með svipuð áhugamál og þú. Þessir tveir tímar eru því að fjölga tengingum barnanna við hvert annað og auka líkurnar á vináttu. Að auki hafa kennarar farið kerfisbundið meira í félagsþáttinn í gegnum hugarfar. En hugarfar er stór partur í verkefninu þar sem reynt er eftir fremsta magni að auka gróskuhugarfar nemenda.
Núna erum við einungis með þessa 2 árganga og of snemmt að halda einhverju fram en það verður gaman að fylgjast með áframhaldandi þróun. Í byrjun snerust markmið með þessari skipulagsbreytingu að námsframvindu nemandans og það gerir það enn enda framúrskarandi árangur náðst. Þessi óvænti ávöxtur sem virðist vera að þroskast fyrir framan okkur gæti þó haft einhver áhrif á þróun eða skipulagningu verkefnisins. Á jákvæðan hátt. Þetta er svo sannarlega hlutur sem við munum fylgjast grannt með og mögulega verða partur af þróun verkefnisins. Vinátta er nefnilega gulls ígildi og getur hjálpað í náminu sem og lífinu. Þetta þarf að skoða og þróa. Mögulega er næsta skref þannig að hafa ástríðu tímana þvert á árganga. Við það myndi möguleikinn á að nemendur geti fundið vini og vinatengsl aukast enn meir. Vinatengsl við einstaklinga sem eru þá einu ári eldri eða yngri en þeir? Það eru allavegana tækifæri til að skoða og útfæra þetta.
Eitt er víst, vináttan er mikilvæg og í þessu þróunarverkefni virðist sem vináttan hafi verið óvænt hliðarafurð þróunarverkefnisins “Kveikjum neistann”.
Óskar Jósúason
Höfundur er aðstoðarskólastjóri GRV – Hamarsskóla




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.