Vinnslustöðin og Vestmannaeyjabær vinna saman í uppgræðslu við Eldfell
KONICA MINOLTA DIGITAL CAMERA
KONICA MINOLTA DIGITAL CAMERA
Í tilefni af 70 ára afmæli Vinnslustöðvarinnar hefur stjórn Vinnslustöðvarinnar samþykkt að ráðast í verkefni við uppgræðslu við Eldfell í samvinnu við Vestmannaeyjabæ. �?etta kom fram á fundi umhverfis- og skipulagsráðs í vikunni.
Vinnslustöðin mun leggja fjármagn til verkefnisins næstu 3-4 árin. Myndað hefur verið aðgerðateymi skipað einstaklingum frá Landbúnaðarháskóla Íslands, Landgræðslunni, Arkitektarstofunni Landmótun, frá Vinnslustöðinni, áhugafólki og frá Vestmannaeyjabæ. Fulltrúar Vestmannaeyjabæjar í teyminu eru formaður Umhverfis-og skipulagsráðs og Bjarni �?lafur Marinósson verkefnastjóri.
Uppgræðsla við Eldfell er mikilvægt verkefni sem brýn þörf er að ráðast í. Vestmannaeyjabær hefur haft mikinn vilja til að lagfæra það sem þarf að gera, en til þess hefur fyrst og fremst skort mannafla. Umhverfis-og skipulagsráð fagnar frumkvæði VSV og lýsir sig viljugan til þess að gera samstarfssamning vegna verkefnisins. Reynt verður að hámarka þátttöku almennings, fyrirtækja og félagasamtaka í verkefninu. Mun upphafspunktur þess vera hluti af dagskrá Goslokahátíðar fimmtudaginn 30. júní og verður það nánar kynnt síðar, að því er segir í bókun ráðsins.

Nýjustu fréttir

„Mikilvægt að við fáum að láta rödd okkar heyrast“
Eyjamenn geta lyft sér af botninum með sigri á Þór
Eyjakonur mæta taplausu liði ÍR í dag
ÍBV tryggði sér sæti í 8-liða úrslitum Powerade bikarsins með sigri á ÍR
Fullnaðarhönnun World Class ekki skilað
Saltfiskur í forgrunni hjá félögum VSV á Conxemar
Cornelia Hermansson gengur til liðs við ÍBV
Íslandsbanki varar við svikasímtölum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.