Vinnslustöðin orðin eigandi meirihluta í Hólmaskeri í Hafnarfirði
2. desember, 2021
Marcin Sokolwski, verkstjóri í Hólmaskeri, Sigurgeir B. Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar, og Albert Erluson framkvæmdastjóri Hólmaskers.

Samkeppnisstofnun hefur samþykkt kaup Vinnslustöðvarinnar hf. á 75% hlutafjár í fiskvinnslufyrirtækinu Hólmaskeri ehf. í Hafnarfirði. Hólmasker hafði áður keypt allar eignir fiskvinnslufyrirtækisins Stakkholts ehf.

Allt starfsfólk Stakkholts var ráðið til starfa hjá Hólmaskeri, starfsemin verður eftir sem áður í Hafnarfirði og megináhersla lögð áfram að handflaka ýsu, frysta og selja á markað á austurströnd Bandaríkjanna.

Vinnslustöðin keypti þrjá fjórðu hluta Hólmaskers af hjónunum Alberti Erlusyni og Jóhönnu Steinunni Snorradóttur. Þau eiga áfram fjórðungshlut í félaginu og Albert er og verður framkvæmdastjóri þess.

Hólmasker mun hér eftir sem hingað til kaupa ýsu á markaði til vinnslunnar og svo kaupa ýsu og fleira af Vinnslustöðinni og öðrum á markaðsverði.

Mestöll ýsa sem skip Vinnslustöðvarinnar færðu að landi var annað hvort seld hér á markaði eða flutt úr landi í gámum. Ýsan er nú að stórum hluta flutt frá Eyjum til Hafnarfjarðar og unnin þar.

Hér er því stuðlað að því að efla fiskvinnslu á Íslandi og kannaðir verða möguleikar á að koma líka handflökuðum fiski af öðrum tegundum en ýsu á framfæri við neytendur á meginlandi Evrópu gegnum sölukerfi Vinnslustöðvarinnar.

Þriðjungur hráefnis að jafnaði keyptur af VSV

Eignarhald Vinnslustöðvarinnar setur strax svip sinn á starfsemina í Hafnarfirði. Það staðfestist í heimsókn á vegum vsv.is.

Í byrjun þessarar viku var til að mynda unninn ýsa úr Drangavík VE og síðan úr Breka VE. Handflakarar af báðum kynjum skáru eins og enginn væri morgundagurinn í sérlega aðlaðandi húsakynnum þar sem bæði er hátt til lofts og vítt til veggja; leyfðu sér varla að líta upp úr verkum sínum eitt augnablik. Þrautvant fólk sem unun var að horfa á flaka. Þau hafa verið í þessu árum og áratugum saman og kunna sitt fag upp á tólf af tíu mögulegum og rúmlega það.

Marcin Sokolwski verkstjóri í fiskvinnslunni segir að aðkoma Vinnslustöðvarinnar hugnist starfsfólkinu afar vel því þannig sé stuðlað að meiru og jafnari hráefnisflæði og þar með meiri vinnu:

„Við viljum einfaldlega hafa nóg að gera, það er aðalatriðið!“

Albert Erluson framkvæmdastjóri lýsir sínum viðbrögðum á svipuðum nótum:

„Eignarhald Vinnslustöðvarinnar tryggir meira hráefni og stöðugri starfsemi. Sjálfur hef ég reynslu af því að kaupa fisk á markaði frá árinu 1988 og það hefur yfirleitt gengið ágætlega, mismunandi eftir árstímum en ögn erfiðara í seinni tíð. Samkeppnin er hörð og mikið er keypt af fiski sem fluttur er út og unnin ytra, miklu meira en fólk flest gerir sér reyndar grein fyrir.

Mikið hefur verið unnið hjá okkur af fiski frá Vinnslustöðinni undanfarna daga, hlutfallslega meira en jafnan verður að öllum líkindum. Við gerum ráð fyrir að kaupa árlega frá VSV um 30% þess hráefnis sem fer í gegnum vinnslukerfi Hólmaskers.“

Bandaríkin – nýr markaður Vinnslustöðvarinnar

Samkomulagið í Hafnarfirði á sér nokkurn aðdraganda. Stjórn og stjórnendur Vinnslustöðvarinnar höfðu í á annað ár kannað ýmsa möguleika í fiskvinnslu, einkum ýsuvinnslu. Sigurgeir B. Kristgeirsson framkvæmdastjóri segir að mörgum steinum hafi verið velt við og ýmsir kostir kannaðir í því ferli.

„Miklar breytingar hafa átt sér stað í botnfiskvinnslu Vinnslustöðvarinnar undanfarin tvö ár eða frá því að félagið keypti saltfiskfyrirtækið Grupeixe í Portúgal.  Saltfiskvinnsla jókst mjög á kostnað botnfiskfrystingar. 

Við höfðum áhuga á því að slást í för með öðrum til að byggja upp ýsuvinnslu hér á meginlandinu en veltum líka fyrir okkur að gera það á eigin vegum í Vestmannaeyjum. Ýsuvinnsla er flóknari og öðru vísi en þorskvinnsla og kallar á annars konar búnað og vinnubrögð. Við höfðum reynt að vélflaka ýsu en náðum ekki tökum á því. Ýsan er mun viðkvæmari en þorskur og þolir illa meðhöndlun. Þarna hentar því handflökun og Hólmasker er með á sínum snærum hóp vaskra handflakara.

Eignarhaldið í Hólmaskeri og reksturinn í Hafnarfirði hefur óveruleg áhrif á starfsemi Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum því ýsa sem annars færi úr landi eða á markað hérlendis verður í staðinn unnin hjá Hólmaskeri. Slíkt eykur augljóslega verðmætasköpun í sjávarútvegi landsmanna og fjölgar möguleikum til arðsamrar starfsemi sem kemur fyrirtækinu og þjóðarbúinu til góða.

Á austurströnd Bandaríkjanna er ensk matarmenning rótgróin, þar með talin hollusta við ýsu. Stakkholt sinnti þessum markaði vel og lengi og Hólmasker erfir viðskiptatengslin.

Við fetum hér inn á nýjar og spennandi brautir en um leið förum við gegn straumnum í sjávarútvegi með því að veðja á handflökun. Það er þá hvorki í fyrsta né síðasta sinn sem við gerum það og má minna á að við fórum líka gegn straumnum með því að velja blástursfrystingu fyrir nýja uppsjávarfrystihúsið okkar og með því að láta smíða togara í Kína. Hvoru tveggja reyndust farsælar ákvarðanir.

Handflakaður fiskur er önnur vara en vélflakaður og þar liggja tækifæri sem við munum spreyta okkur á að nýta í öðrum fisktegundum en ýsu í Frakklandi, Þýskalandi og víðar.

Þá skipti nálægð Hafnarfjarðar við Keflavíkurflugvöll máli við ákvörðun okkar. Við höfum í tvígang reynt að flytja ferskfisk til Bandaríkjanna en það gekk ekki af því við gátum ekki ábyrgst örugga afhendingu vörunnar frá Eyjum í flug héðan og áfram út. Við spáðum meira að segja í að flytja út ferskfisk í skipum til Bretlands og þaðan flugleiðis til Bandaríkjanna en af því varð ekki. Við gátum ekki staðið við að geta afhent kaupendum vestra fiskinn á umsömdum tíma vegna mögulegra samgöngutruflana á leiðinni milli Eyja og íslenska meginlandsins.“

 

Starfsmenn Hólmaskers að tælensku tafli – fastur liður í matartímum!

Svipmyndir úr vinnslunni í Hafnarfirði.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst