VR í Vestmannaeyjum  
Halla Gunnarsdóttir Formaður VR og Pæjumótsmeistari 1994.  

Fyrir rúmum tveimur áratugum síðan tók félagsfólk Verslunarmannafélags Vestmannaeyja þá ákvörðun að sameinast VR. Slíkar ákvarðanir eru aldrei teknar nema að undangengnu umfangsmiklu hagsmunamati og er auðvelt að ímynda sér að árin áður hafi einkennst af ítarlegum umræðum um kosti og galla slíkrar sameiningar.  Hættan er augljós, því þegar sameiningar innibera annars vegar landsbyggðareiningar og hins vegar höfuðborgarsvæðið, þá eiga hagsmunir hins síðarnefnda oft til að verða ofan á. 

Verslunarmannafélag Vestamannaeyja var ekki eitt um að standa frammi fyrir ákvörðun sem þessari enda höfðu félög í öðrum landshlutum þegar sameinast VR. Almennt talið hafa þessar sameiningar heppnast með ágætum, ekki síst þar sem lögð hefur verið áhersla á að halda úti þjónustu á hverju svæði fyrir sig. Hins vegar má alltaf velta því upp í hversu góðum tengslum forysta VR hverju sinni er við hið stóra félagssvæði félagsins.  

Mér er mikið í mun að vera formaður allra VR-félaga og horfi ég þar meðal annars til hins stóra félagssvæðis VR og þeirra ólíku aðstæðna sem fólk býr við í mismunandi landshlutum. Ég legg áherslu á að viðhalda þjónustu í Vestmannaeyjum, en einnig að formaður láti sig staðbundin mál sem tengjast kjörum félagsfólks varða á. Ég mun leggja mig fram um að verja tíma í Vestmannaeyjum, líkt og annars staðar, heimsækja vinnustaði VR félaga í bænum og tryggja að sjónarmið þeirra séu til hliðsjónar í stefnumótun um skipulag félagsins, sem stendur fyrir dyrum.  

Framundan eru kosningar í VR og óska ég eftir umboði til að leiða félagið áfram, en ég tók við stjórnartaumunum þegar forveri minn tók sæti á Alþingi laust fyrir áramót. Ég hvet VR félaga í Vestmannaeyjum til að nýta kosningarétt sinn í félaginu og kjósa bæði formann og stjórnarfólk. Rafrænar kosningar fara fram 6. til 13. mars nk. Allar nánari upplýsingar má finna á vef VR, vr.is, og á minni síðu, halla.is 

Nýjustu fréttir

Tveir handteknir í tengslum við andlát
Vera Lífsgæðasetur og LifeLine Health hefja samstarf
Andrea Jacobsen til liðs við ÍBV
Tafir vegna bilunar
Dagskrá fyrsta Þorrablóts ÍBV klár
Fækkun sjúkrafluga milli lands og Eyja
Tökum þátt í að gera bæinn okkar enn betri!
Hvert siglir Herjólfur í dag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.