VSV: Endurskipuleggja útgerð uppsjávarskipa
vsv_2016-6.jpg
Vinnslustöðin. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Í dag var sjómönnum á uppsjávarskipum samstæðu Vinnslustöðvarinnar tilkynnt um breytingar á skipastól útgerðarinnar. Félagið gerir nú út þrjú skip til uppsjávarveiða.  Huginn VE, Sighvat Bjarnason VE og Gullberg VE.  Í kjölfar minnkandi aflaheimilda í makríl, síld og loðnu, sem nema 45 þúsund tonnum,  er ekki þörf á að gera öll þrjú skipin út á ársgrundvelli. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Veinnslustöðvarinnar í dag.

Þar segir jafnframt að Huginn og Gullberg verði gerð út sem aðal skip félagsins og verða gerð út á makríl, síld, kolmunna og loðnu en Sighvatur Bjarnason verður gerður út á loðnu- og makrílvertíðum þegar þess þarf.

Með breytingunum verður komið á skiptikerfi sjómanna til að tryggja að sem flestir haldi starfi sínu.

Flestum fastráðnum skipverjum verður boðið áframhaldandi starf í nýju ráðningarfyrirkomulagi á uppsjávarskipum útgerðarinnar. Þar sem því verður við komið verður sjómönnum sem ekki fá pláss á uppsjávarskipum boðið starf á öðrum skipum eða í landdeildum Vinnslustöðvarinnar.

Nýjustu fréttir

Draumurinn um bikarúrslit hjá ÍBV úti – Tap gegn Þrótti R. á útivelli
Eyjamenn vilja geta keypt Laxey-lax
Vestmannaeyskt námsefni nú fáanlegt til útláns
Hraunbúðarmálið: Segja að tryggja verði réttaröryggi sjúkraliða
Leikskrá knattspyrnudeildar ÍBV komin út
Bærinn vissi ekki af úttektinni á Hraunbúðum
Lottóappið heldur áfram að gleðja landsmenn!
Omar Sowe fær tveggja leikja bann
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.