„Ýmislegt öðruvísi en við erum vanir”
Vestmannaey_framan_min
Vestmannaey VE í heimahöfn. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Ísfisktogararnir Vestmannaey VE og Bergur VE lönduðu báðir fullfermi í Eyjum í gærmorgun að lokinni 30 tíma veiðiferð. Aflinn var að mestu þorskur og ýsa.

Rætt er við Birgi Þór Sverrisson skipstjóra á Vestmannaey á vef Síldarvinnslunnar í dag. Þar er hann spurður hvort menn séu ekki sáttir við aflabrögðin.

„Jú, þetta er eins og það getur best verið. Við byrjuðum að veiða á Víkinni í þessum túr en síðan gerði þar vitlaust veður. Þá fórum við á Selvogsbankann og tókum þar eina sköfu og þar með var skipið fullt. Bergur var á nákvæmlega sama róli og við. Þetta er mjög góður fiskur sem fæst, vænn þorskur og fín ýsa. Nú eru lokanir byrjaðar þannig að við höfum takmörkuð svæði til að veiða á og þannig verður það allan aprílmánuð. Ég geri ráð fyrir að nú verði farið að hægja á okkur en yfirleitt dregst afli saman þegar líður á aprílmánuð. Annars er ýmislegt öðruvísi en við erum vanir. Stóri fiskurinn heldur sig til dæmis allur uppi á grunnslóðinni og fyrir utan 12 mílurnar er allt steindautt. Þetta fer allt eftir því hvað er að gerast í sjónum og ætið skiptir þar miklu máli. Við erum að verða varir við skvettur af loðnu en hún er seint á ferðinni. Auðvitað sækir fiskurinn í hana,” segir Birgir Þór.

Vestmannaey hélt á ný til veiða í morgun en Bergur fer í kvöld.

Nýjustu fréttir

Tæp 63 prósent segja nei í Suðurkjördæmi
ÍBV stelpunum spáð sigri í Olís deildinni – Strákunum spáð sjöunda sæti
Spyr Morgunblaðið spurninga sem RÚV lætur eiga sig?
Myndband: Ný íbúðablokk tekur á sig mynd við Áshamar
Sjö sóttu um – sex umsóknir standa eftir
Evrópa er meira en Evrópusambandið
Suðurlandi allt
Tvö afmælismót Taflfélagsins um helgina
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.