�??Reikna ekki með að spila heima næstu ár�??
�??�?g reikna með að þetta komist allt á hreint í janúar. Sarpsborg vill halda mér en maður verður bara að sjá hvað gerist,�?? sagði Eyjamaðurinn �?órarinn Ingi Valdimarsson við Morgunblaðið í gær. �?órarinn, sem er með samning við ÍBV út næsta ár, lauk á dögunum fyrstu leiktíð sinni í atvinnumennsku sem lánsmaður hjá norska úrvalsdeildarliðinu Sarpsborg 08. Lánssamningurinn rennur út um áramót en forráðamenn Sarpsborg vilja kaupa �?órarin sem er kominn í frí hérlendis eftir að hafa hjálpað Sarpsborg að halda sér í efstu deild.
�??�?g reikna ekki með að spila hér heima næstu árin. Áhuginn er mestur á að spila úti,�?? sagði �?órarinn. �??Mér leið mjög vel þarna og fékk að spila helling á fyrsta tímabili. Auðvitað væri ég til að í að vera þarna áfram en ef það opnast eitthvað annað þá er það alveg möguleiki líka,�?? sagði �?órarinn sem lék 21 leik af 30 í byrjunarliði á sinni fyrstu leiktíð í norsku úrvalsdeildinni, og kom 5 sinnum inná sem varamaður. �?órarinn leysti margar stöður og er ánægður með lífið í atvinnumennskunni.

Nýjustu fréttir

Sæunn Magnúsdóttir er tilbúin í slaginn
ÍBV í úrslit eftir sigur gegn Haukum
Erfið staða í Land­eyja­höfn
Tvær flugferðir á dag á meðan beðið er opnunar Landeyjahafnar
Hinkrum við, vöndum okkur betur
ÍBV mætir Tindastól í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins
Er Herjólfsferð örugg ferð?
Eyjarnar fiskað afar vel að undanförnu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.