Fjárfestar ásælast TM

Í viðskiptablaði Morgunblaðsins í morgun er fjallað um hugsanlegan áhuga Kjarrhólma á 42.45 %  hlut Guðbjargar Matthíasdóttur og fjölskyldu í Tryggingamiðstöðinni. Kjarrhólmi er félag í eigu Sunds og FL Group og er Kjarrhólmi í dag eigandi 37.57 % hlutafjár í TM.

Einnig er talið að Gnúpur Fjárfestingafélag sem er meðal annars í eigu Magnúsar Kristinssonar hafi einnig áhuga á hlut Guðbjargar. Tryggingamiðstöðin er sterkt fyrirtæki með sterka eiginfjárstöðu upp á tæplega 23 milljarða króna. Af því er talið að félagið þurfi á milli 5-6 milljarða til að standa að vátryggingastarfsemi og því er TM með óráðstafað eigið fé upp á 15 milljarða.

Nái Kjarrhólmi að kaupa hlut Guðbjargar verður TM tekið af markaði enda Kjarrhólmi þá eigandi að tæplega 80 % hlutafjár TM. Talið er að Kjarrhólmi sé tilbúinn að greiða að stærstum hluta fyrir hlutaféð í TM með hlutafé í FL Group og fengi því Guðbjörg og fjölskylda um 9 % hlut í því félagi.

 

Nýjustu fréttir

Fyrir þig en ekki sjálfa sig
Laskað lið ÍBV tapaði gegn Val
Athugasemd
Dísa leiðir Eyjalistann
Kvenfélagið Líkn færði HSU veglega gjöf
Loðnan tengir saman Vestmannaeyjar og Japan
Listir og menning í Framhaldsskóla Vestmannaeyja
Lestur ársreiknings bæjarins gefur allt aðra mynd
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.