Vestmannaeyjabær kynnir hugmyndir um mótvægisaðgerðir

Vestmannaeyjabær hefur boðað til blaðamannafundar á morgun þar sem lagðar verða fram tillögur um mótvægisaðgerðir vegna niðurskurðar á þorskkvóta. Í nýrri skýrslu, sem unnin hefur verið fyrir bæinn, er áætlað að staðbundin áhrif 30% skerðingar á kvóta Vestmannaeyja nemi alls um 3,6 milljörðum króna á komandi fiskveiðiári.

Í tilkynningu frá Vestmannaeyjabæ segir, að sérfræðingar í hafrannsóknum á Íslandi hafi gefið í skyn að skerðingin muni að öllum líkindum ná til næstu þriggja ára. Megi því álykta að áhrifin verði vart undir 10 milljörðum á þessum tíma í Vestmannaeyjum.

Í greinargerð SSV Þróunar og ráðgjafar um staðbundin áhrif kvótaskerðingarinnar á Eyjar, kemur einnig fram að af 79 sveitarfélögum í landinu öllu, séu Vestmanneyjar kvótaríkasta sveitarfélagið þegar horft sé til heildarkvóta í þorskígildum.

„Höggið fyrir atvinulífið og samfélagið allt vegna niðurskurðar á þorskkvóta er því mikið. Eyjamenn eru hinsvegar þekktir fyrir að líta á mótlæti sem verkefni en ekki vandamál og munu líta á þessar þrengingar sem hvatningu til að gera enn betur hvað varðar þá vaxtarbrodda sem fyrir eru. Því hefur Vestmannaeyjabær nú kallað eftir mótvægisaðgerðum ríkisstjórnar og lýst sig reiðubúna til að draga vagninn hvað tillögur og framkvæmd þeirra varðar,” segir í tilkynningu Eyjamanna.

Nýjustu fréttir

Fyrirliði ÍBV spennt fyrir komandi tímabili í Bestu deildinni
Þungt tap ÍBV gegn KR
Stelpurnar klárar í slaginn
Jóna Heiða með sýningu í Sagnheimum
Eldsneytisvandi í Eyjum ratar á Alþingi
Spurt og svarað: Anton Örn frá Eyjalistanum
Gröfuþjónusta Brinks lægstbjóðandi í gatnagerð og fráveitu í Miðgerði
Sumarið heilsar með stórleik
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.