Tillaga Eyjamanna skoðuð

Samgönguráðherra segir tillögu bæjarráðs Vestmannaeyja um að flýta gerð Bakkafjöruhafnar góða en nú þurfi að skoða hvort hún sé framkvæmanleg. Eftir að búið sé að útiloka gerð jarðganga sé nú hægt að beina öllum kröftum að gerða Bakkafjöruhafnar.

Bæjarráð Vestmannaeyjabæjar lagði í gær fram hugmyndir að mótvægisaðgerðum vegna niðurskurðar þorskkvóta á komandi fiskveiðiári. Helsta tillaga ráðsins er að framkvæmdum við höfn í Bakkafjöru verði flýtt og að hún verði tilbúin árið 2009 en ekki árið 2010 eins og ger er ráð fyrir í samgönguáætlun. 

Kristján L. Möller samgönguráðherra segir að tillögurnar hafi ekki borist sér en farið verði yfir þær í ráðaneytinu þegar það verði. “Þetta er í sjálfur sér góð tillaga en við verðum síðan að skoða hvað er raunhægt. Núna erum við búin að ræða þessi jarðgöng og þá getum við einbeitt okkur að Bakkafjöru.” 

Nýjustu fréttir

Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Dýptarmælingar fyrirhugaðar í Landeyjahöfn
Landsréttur hafnaði kröfu um gæsluvarðhald
Framkvæmdir í febrúar-blíðunni
„Þær halda utan um hjartað í Hljómey“ 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.