Höfuðsnillingur verkefnastjórnunar

Fátt getur verið meira hressandi og skemmtilegt en að lesa sunnudagsmoggann í morgunsárið.  Gaman hófst með því að Mogginn hreinlega hengdi Sturlu Böðvarsson upp á afturfótunum á forsíðunni og batnaði bara eftir að ég las grein Róberts Marshalls þar sem hann hellti úr skálum reiði sinnar (og samgönguráðherra???) undir fyrirsögninni Til hvers er Framsóknarflokkurinn? Þar eru ég og Bjarni Harðar titluð höfuðsnillingar verkefnastjórnunar og erum spurð hvort við viljum að Vegagerðin styðji sig áfram við sömu ráðgjöf og áður í málefnum Grímseyjarferju.  Sem höfuðsnillingur verð ég hreinlega að svara í samræmi við þær upplýsingar sem koma fram í níu síðna úttekt Moggans. Ef það er ráðgjöf Sturlu Böðvarssonar og Árna Mathiesenar þá er svarið svo sannarlega nei.

En væntanlega hefur Róbert lítinn áhuga á mínum svörum, eftir að hafa misst svona eftirminnilega kúlið, líkt og Egill Helgason orðaði það. 

Nýjustu fréttir

Atli Steinn fór á kostum þegar ÍBV lagði Stjörnuna að velli
Sebastiano Caboto við dýpkun í Vestmannaeyjahöfn
Norðurljósin settu svip á hrekkjavökuna í Eyjum
Engin fyrirheit um fjármögnun nýs dráttarbáts
Eyjamenn vilja fylgja eftir góðum útisigri
Grikk eða gott í Eyjum – myndir
Erlingur og lærisveinar áfram á sigurbraut í Þýskalandi
Konunglegt drama í Sagnheimum – hver er dularfulli Íslendingurinn?
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.