Frönsk lauksúpa

Þessi franska lauksúpa er mjög auðveld í eldun og smakkast frábærlega. Elda þessa súpu oft þegar lítið er til í ískápnum og ég nenni hreinlega ekki út í búð.  Maður talar ekki endilega frönsku eftir að hafa borðar hana en iljar vel á köldum vetrar degi.

 800 gr laukur
2 msk laukur
1 msk olía
2 tsk ferskt timjan eða ¼ tsk þurrkað timjan
1.2 líter vatn
1 msk nautakraftur
Sletta af hvítvíni eða púrtvíni
3 msk hveiti
Salt og pipar
Gott brauð til að setja í súpuskálina
Ostur

Laukurinn saxaður niður í smá bita. Smjör brætt í potti og olía sett með, laukur og timjan látnir krauma í pottinum við vægan hita í 20 mín.
Hitið vatnið upp að suðu og hrærið nautakraftinum saman við. Stráið örlitlu hveiti yfir laukinn og hrærið vel og hellið vatninu smá saman yfir laukinn, Ef að súpan á að vera þykkari þá bætið við hveiti. Kryddið hana svo til með salt og pipar og látið hana malla við vægan hita í ca 30 mínútur.
Setjið súpuna í skál og skerið brauðið í litla teninga og stráið yfir og setjið góðan ost þar ofan á. Ef að skálin þolir að fara inn í ofn setjið þá skálina undir grillið og bræðið ostinn.

 

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.