Það er vel hægt að reka fyrirtæki frá Vestmannaeyjum og sækja á markað á Íslandi eða annars staðar ef því er að skipta.

www.eyjar.net heldur áfram að heyra í brottfluttum eyjamönnum bæði innanlands sem og erlendis með þeim tilgangi að fá að vita hvar þau eru stödd í lífinu og hvaða viðhorft þau hafa til Vestmannaeyja.

Að þessu sinni heyrðum við í Ómari Smárasyni en Ómar er búsettur í Hafnarfirði

Nafn?
Hreinn Ómar Smárason (1973)

Fjölskylduhagir?
Í sambúð með Skagafjarðarmærinni Hafrúnu Jónsdóttur.  Eignuðumst soninn Arnar Frank 19. janúar 2007.  Annað barn væntanlegt um miðjan apríl 2008.

Atvinna og menntun?
Iðnrekstrarfræðingur frá Tækniskóla Íslands. 
Hef starfað hjá KSÍ síðan 1. júní 1998, við markaðs- og kynningarmál og stjórn leyfiskerfis KSÍ.

Búseta? 
Hafnarfjörður

Mottó?
Það er hægt að finna húmor í öllu, og ég meina öllu.

Ferðu oft til Eyja ?
Ég fer alltof sjaldan, sérstaklega eftir að foreldrar mínir fluttust upp á land.  Þó á ég mjög góðan vinahóp í Eyjum sem ég held góðum tengslum við.  Fer samt eina til tvær ferðir til Eyja á hverju ári í tengslum við starf mitt, og það eru líka alltaf ein til tvær ferðir á eigin vegum fyrir utan það.

Telurðu það hafa mótað þig sem einstakling að hafa alist upp í eyjum?
Alveg tvímælalaust.  Mikið frelsi og öryggi sem felst í því að hafa fengið að alast upp í Eyjum.  Áhyggjulaus æska að mestu leyti.  Maður var í raun umkringdur fólki sem maður þekkti og fólki sem þekkti foreldra manns.  Það var einhvern veginn alltaf einhver að gæta okkar krakkanna.

Tenging við eyjarnar í dag?
Góður vinahópur sem býr í Eyjum og mikil samskipti þar á milli.  Ég er stoltur Eyjamaður og held því ávallt hátt á lofti að Vestmannaeyjar séu nafli alheimsins, bæði í gamni og alvöru. 

Fylgistu með því sem er að gerast í eyjum ?
Já, ég geri það.  Foreldrar mínir eru áskrifendur að Fréttum, þannig að ég kemst í þær.  Að auki skoða ég reglulega vefmiðlana.  Síðan er ekki hægt annað en frétta ýmislegt í gegnum vinafólk sem býr í Vestmannaeyjum.

Hvernig finnst þér staða Vestmannaeyja í dag?
Ég held að staðan sé erfið að mörgu leyti, fólksfækkunin virðist vera mikil og atvinnutækifæri af skornum skammti.  Vestmannaeyjar eru svo sem ekkert einsdæmi í þessu, heldur er landsbyggðin öll í svipaðri stöðu.  Sama þróunin á sér í raun stað um alla Evrópu, yngra fólkið sækir menntun í borgirnar og snýr ekki aftur heim á landsbyggðina eftir að námi lýkur.  En það þýðir ekkert að vera með eitthvað volæði þó á móti blási.  Vestmannaeyjar eru yndislegar í alla staði og þar er frábært að vera.  Ég er allavega stoltur Eyjamaður og held því ávallt hátt á lofti að Vestmannaeyjar séu nafli alheimsins, bæði í gamni og alvöru.

Hvar finnst þér sóknarfærin liggja fyrir Vestmannaeyjar?
Það er vel hægt að reka fyrirtæki frá Vestmannaeyjum og sækja á markað á Íslandi eða annars staðar ef því er að skipta.  Þessi heimur er alveg pínulítill og markaðirnir eru miklu nær en fólk heldur.  Menn verða að takast á við verkefnin óhræddir og fá til þess stuðning frá bæjarfélaginu og bæjaryfirvöldum.  Ef þú hefur trú á verkefninu eru þér allir vegir færir.

Hvernig sérðu næstu 10 ár í þróun eyjanna?
Þetta er erfið spurning og ég er ekki viss um að ég geti svarað henni svo vel sé.  Eitt er allavega ljóst.  Menn verða að skapa sér sína eigin framtíð. 

Sérðu fyrir þér á næstu árum að flytja til eyja?
Ég sé það svo sem ekki alveg fyrir mér, enda er ég ekkert að fara að hætta í því starfi sem ég er í núna.  Ég myndi gjarnan vilja gefa börnunum mínum tækifæri á því að alast upp í Eyjum, en allt snýst þetta um atvinnutækifæri.

Gætirðu hugsað þér að stofna og reka fyrirtæki í Vestmanneyjum?
Ég gæti alveg hugsað mér það, en ég hef svo sem ekki enn fengið góða viðskiptahugmynd.  🙂    Það yrði alltaf eitthvað þjónustutengt, enda var nám mitt mikið til í markaðssetningu þjónustu og starf mitt hjá KSÍ snýst að öllu leyti um að þjónusta viðskiptavini, sem hentar mér mjög vel.  Það er hægt að þjónusta fólk á ýmsan hátt og þú getur gert það í gegnum síma og internet.  Markaðurinn þarf ekki að afmarkast við Vestmannaeyjar.  Ég hef t.d. alltaf haldið tryggð við viðskiptabankann minn í Eyjum (Útvegsbankann sem nú er Glitnir), enda algjör óþarfi að skipta á tímum tölvupósts, internets og gsm-síma.  Og svo fær maður alltaf persónulega og vingjarnlega þjónustu, og fljóta afgreiðslu.  Nú vantar bara viðskiptahugmyndina og hagstætt lán hjá Glitni til að starta dæminu …..  😉

Ef að Eyjamenn þyrftu að fjármagna göngin að hluta til, myndirðu kaupa hlutafé í göngunum ?
Ég verð að vera hreinskilinn og segja nei.  Mér finnst gott að ferðast með Herjólfi og ég mun halda því áfram.  Ef göngin koma þá koma þau, en persónulega hef ég bara enga trú á því að það muni gerast.

Eitthvað að lokum ?
Mig langar að hrósa bæjaryfirvöldum fyrir ákvörðunina um að byggja knattspyrnuhús.  Ef rétt er haldið á spilunum getur þetta gert gæfumuninn í framtíð knattspyrnunnar í Vestmannaeyjum.  Nú verða menn að standa vel að skipulegu uppeldi ungra leikmanna og nýta þannig aðstöðuna til hins ýtrasta.  ÍBV má ekki dragast aftur úr öðrum félögum.  Næsta skref þarf að taka strax og tryggja áhorfendum á Hásteinsvelli viðunandi aðstöðu og skjól fyrir veðri og vindum með yfirbyggðri stúku.  Stuðningsmenn ÍBV eiga það einfaldlega skilið, fyrir skilyrðislausan stuðning við sitt lið áratugum saman.  Ég bið svo auðvitað kærlega að heilsa öllum sem ég þekki í Eyjum, og að sjálfsögðu – Áfram ÍBV!

 

Nýjustu fréttir

Vestmannaeyjar í fókus hjá bresku sjávarútvegsblaði
Eyjamaðurinn: Elís Þór
Miðflokkurinn býður fram í Eyjum
Kyrrðarbæn í dag
Tveir handteknir í tengslum við andlát
Vera Lífsgæðasetur og LifeLine Health hefja samstarf
Andrea Jacobsen til liðs við ÍBV
Tafir vegna bilunar

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.