Ofnbakaður fiskur

Þessi réttur er fljótlegur og ætti ekki að taka meira en 5-10 að útbúa og skella inn í ofn, einnig sakar ekki að hann er hollur og góður.

Ýsa
Laukur
Gulrætur
Paprika
Sveppir
½ kókosmjólk
½ Sítróna
Rifinn ostur
Salt
Pipar
Karrý

Setjið örlítið af ólífuolíu í botninn á eldföstu móti og setjið fiskinn í botninn á mótinu. Kreistið ½ sítrónu yfir fiskinn. Skerið næst allt grænmetið og stráið yfir fiskinn, kryddið með salt og pipar og karrý og hellið kókosmjólkinni yfir. Setjið svo rifinn ost yfir og setið í ofn í 25 mín á 180°.  Berið fram með hrísgrjónum og salati og ísköldu vatni.

Nýjustu fréttir

Fótboltasumarið gert upp hjá yngri flokkum ÍBV
Foreldrafundur um Kveikjum neistann á morgun
Varamótorar Herjólfs inni í fjárlagafrumvarpinu
Malbikun hafin – Sólhlíð og Kirkjuvegur næst á dagskrá
Arnar Pétursson valdi 18 leikmenn fyrir vináttuleiki gegn Póllandi
Yfirtaka á úrgangsþjónustu kallar á verulega fjárfestingu
VestExpo27 verður haldin í Goslokavikunni
Mótorarnir pantaðir en fjármögnun ótryggð
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.