Gæsluvarðhalds krafist í kjölfar brunans í Eyjum

Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum mun í dag fara fram á í Héraðsdómi Suðurlands að maður sem er í haldi lögreglunnar vegna brunans í Fiskiðjunni í fyrrinótt verði úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna rannsóknarhagsmuna.

Í tilkynningu frá lögreglunni í Eyjum í dag segir ennfremur:

Lögreglan í Vestmannaeyjum hefur verið að rannsaka upptök brunans í Fiskiðjunni sem tilkynntur var aðfaranótt 14. desember sl. Við rannsókn málsins hefur komið í ljós að maður sá sem er í haldi lögreglunnar í Vestmannaeyjum og handtekinn var um miðjan dag í gær, var síðasti maður inni í Fiskiðjunni, svo vitað sé, áður en eldsins varð vart.

Nýjustu fréttir

Bókasafnið – liðsfélagi í Kveikjum neistann
Óvenjulegir tónleikar í sundlauginni – myndir
Stjórnendur Herjólfs gestir á laugardagsfundi í Ásgarði
Safnahelgin formlega sett – myndir
Magnús Dagur tryggði ÍBV sigur á Víkingi á lokasekúndunum
Steinunn Sigurðardóttir les úr Veislu þrjú á Safnahelgi
Lengri hafnargarðar myndu auka dýpkunarþörf
Rauðátan gæti orðið ný gullnáma sjávarútvegsins
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.